<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:31:15" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:32:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:31:15">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil fá að hvetja hæstv. ráðherra til dáða hvað
    þetta varðar því að þetta er orðinn stór hópur og í mörgum tilvikum búinn
    að vera hér lengi, að það verði e.t.v. farið í að vinna gögn og úttektir
    um hvernig fólki hefur gengið hér og gengið að fóta sig. Það er auðvitað
    partur af frumvarpinu líka að horfa aðeins til framtíðar og beina þessum
    hópi í það að sækja um dvalarleyfi hér, e.t.v. á grundvelli atvinnu, náms
    eða annarra þátta, þannig að þetta skiptir miklu máli. Það er eitt að taka
    við fólki í neyð en það er líka mikil ábyrgð að taka þannig á móti því að
    við sinnum okkar skyldum vel og gerum fólki kleift að aðlagast
    þjóðfélaginu. Ég held að það sé góð hugmynd hjá hæstv. ráðherra, eins og
    hún nefndi, að fá kannski inn í nefndina, þótt ég sitji ekki í henni, gögn
    og kannski eitthvað aðeins meira niðurbrot hvað þetta varðar. Ég held að
    það væri gagnlegt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>