<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:32:20" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:33:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:32:20">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég tek heils hugar undir með þingmanni. Hvað þetta
    varðar þá sér maður birtingarmyndir þess þegar málaflokkar falla undir
    ólík ráðuneyti. Til dæmis leiðir af sjálfu sér að þegar maður er að skoða
    atvinnuþátttöku þá viljum við líka skoða ástæður þess að það er ekki
    atvinnuþátttaka. Er það vegna þess að menn eru við nám eða hvað það er sem
    býr þar að baki? Bótakerfin eru ekki inni í dómsmálaráðuneytinu þannig að
    þetta eru gögn sem liggja m.a. fyrir í félagsmálaráðuneytinu. Það kom
    nýverið út skýrsla sem félags- og húsnæðismálaráðherra lagði fram á
    þinginu um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda og þar er þetta tekið
    saman, atvinnuþátttaka þessa hóps og annarra. En það er sjálfsagt mál að
    taka saman sérstakt minnisblað um þetta til að færa allsherjarnefnd við
    meðferð málsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>