<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:33:29" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:34:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:33:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir umfjöllunina. Hér er,
    að því er virðist, og það er kannski það sem ég myndi í fyrri fyrirspurn
    vilja fá staðfest frá hæstv. ráðherra, ekki verið að breyta neinu svo
    heitið geti í sambandi við Úkraínumenn, þ.e. þetta er í raun og veru engin
    breyting, bara framlenging á þeirri umgjörð sem verið hefur í samræmi við
    það að aðrar þjóðir eru að framlengja þetta um þetta ár. Það er verið að
    ýta þessu á undan sér í einhverjum skilningi vegna þess að menn vildu
    náttúrlega ekki að þetta félli niður þannig að menn færu þá í það að sækja
    beint um vernd hjá Útlendingastofnun, þ.e. einstaklingsbundið. Ég myndi
    vilja fá það staðfest frá hæstv. ráðherra að í þessu felist í raun og veru
    ekki breyting nema bara það sem hefur komið fram. Það er ekki verið að
    breyta því hversu mikill aðgangur er hérna fyrir Úkraínumennina. Svo, ef
    mér gefst tími hér í síðari andsvörum, vildi ég ræða um — en ég byrja á
    þessari spurningu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>