<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:34:44" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:35:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:34:44">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir
    spurninguna. Breytingin er þessi: Að fara úr fimm árum í sex, að lengja
    þessa tímabundnu heimild fólks sem kom hingað á grundvelli fjöldaflótta um
    eitt ár. Það er gert í samræmi við stefnu Evrópusambandsins, ákvarðanir og
    nálgun Evrópusambandsins í þessum efnum og hefur verið t.d. til umræðu á
    fundum sem ég hef sótt í fyrirheitna landinu um hvaða skref skyldi þar
    stíga. Þannig að það er verið að lengja þarna um eitt ár. Svo eru þarna
    nokkur önnur atriði til viðbótar sem ég geri ráð fyrir að þingmaðurinn
    ætli að spyrja um í seinni spurningu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>