<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:35:37" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:36:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:35:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég
    hefði áhuga á að vita: Vegna þess að það er talað um hver afdrif þessa
    hóps verða eftir að þessari tímabundnu vernd lýkur í þessum tilmælum frá
    Evrópusambandinu sem verið er að vísa til í frumvarpinu þá finnst mér það
    heldur hljóma þannig að menn séu að horfa til þess með hvaða hætti menn
    geta veitt t.d. ótímabundið dvalarleyfi á árinu og önnur dvalarleyfi eftir
    að þetta fellur niður, eftir að menn hætta að hafa þessa opnu vernd. Ég
    hefði áhuga á að heyra hver framtíðarsýn hæstv. ráðherra er fyrir þennan
    hóp í víðari skilningi. Verður hann allur hérna eftir eða mun hann fara
    aftur heim? Það er kannski erfitt að segja til um það en menn geta haft
    ákveðna sýn. Síðan er það í sambandi við Úkraínumenn kannski í víðari
    skilningi, hvort engin takmörk séu sett fyrir því eða hvort það standi
    ekki til að skoða frá hvaða svæðum í Úkraínu menn eru að koma. Þetta hefur
    verið til umræðu, að það er auðvitað ólíkt ástand eftir héruðum og eftir
    svæðum. En eins og ég skil það þá hefur ekki verið gerð nein krafa um að
    fólk sé frá einu eða öðru svæði hingað til hérna á Íslandi. Hvort eitthvað
    slíkt sé til skoðunar og hvort menn hafi gögn um það hvaðan fólk er að
    koma hérna til Íslands, frá hvaða svæði í Úkraínu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>