<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:36:58" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:38:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:36:58">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég rakti það í framsögu minni hvað gerist þegar
    þessum kafla, sem í eðli sínu er tímabundinn, lýkur. Þá verður þessi hópur
    fólks sem er hér á landi í þeirri stöðu, vilji hann vera hér áfram — maður
    heyrir auðvitað að fólk vilji mjög gjarnan geta snúið aftur til síns
    heima, en fyrir þau og fyrir þá sem verða hér áfram þá eru þeir
    einfaldlega í þeirri stöðu að sækja um dvalarleyfi á grundvelli einhverra
    einstaklingsbundinna þátta. Þeir þurfa þá að vera hér á grundvelli
    atvinnu, náms, sérstakra tengsla eða hvað það nú er. Það þýðir ekki að
    fólk muni ekki eiga kost á áframhaldandi dvöl en það verður á
    einstaklingsbundnum grundvelli. Svo er það auðvitað fyrir hvern og einn að
    ákveða til hvers hugur þeirra snýr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi svæðisskiptingu er það samtal sem hefur átt sér stað víða
    og ákveðin ríki eru þá þegar farin að beita. Ég veit hins vegar að afstaða
    úkraínskra stjórnvalda er þessi: Það er ekkert svæði í Úkraínu alveg
    öruggt <ns:bjalla/> og við höfum ekki verið í markvissri vinnu í þeim
    efnum, en ég get sagt að önnur ríki hafa verið að stíga skref í þessa
    átt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>