<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:38:30" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:40:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:38:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv.
    dómsmálaráðherra fyrir yfirferðina og svörin hér í fyrri andsvörum. En það
    sem mig langar aðeins að eiga orðastað við hæstv. dómsmálaráðherra um — af
    því að hér hefur komið fram að það sé engin breyting, þetta séu fimm eða
    sex ár. Ef maður les frumvarpið og les til dæmis um tilefni og nauðsyn
    lagasetningar kemur fram að 20. ágúst var gerð reglugerðarbreyting er
    varðar einstaklinga sem sæta takmörkunum á brottför frá Úkraínu vegna
    herskyldu. <ns:frammíkall skst="dómsmrh.">Já.</ns:frammíkall> Já, ég veit,
    það stendur hér. En spurning mín er í raun og veru þessi: Er þetta ekki
    gríðarlega stór breyting?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mér finnst þetta vera siðferðislega risastórt
    mál. Og er þetta ekki eitthvað sem hefði átt erindi inn í frumvarpið sem
    lagabreyting í staðinn fyrir að hæstv. ráðherra og ráðuneytið taki þetta
    eitt og sér upp í reglugerðarheimild? Af því að við erum nú hér að ræða
    þetta frumvarp spyr ég hvort ekki hefði verið skynsamlegra að nota ferðina
    og setja þetta inn í lögin þannig að Alþingi Íslendinga <ns:bjalla/> hefði
    getað tekið umræðu um þetta stóra mál, sem það er að mínu viti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>