<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:41:37" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:43:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:41:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir
    heiðarlegt og gott svar. Ég skil hæstv. dómsmálaráðherra mætavel þegar hún
    segir hér í ræðupúlti að þetta hafi ekki verið auðveld ákvörðun. Ég skil
    sömuleiðis mætavel þær ástæður sem liggja að baki því að þessi breyting er
    gerð. Og ég skil mætavel þá stöðu sem Ísland hefði verið í ef Ísland væri
    eina ríkið sem hefði ekki gert slíkt hið sama og þá væntanlega varðandi
    ásókn flóttamanna hingað til lands.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það sem ég er hins vegar einfaldlega að benda á, virðulegur
    forseti, er sú staðreynd að þetta kemur hér víða fram í greinargerð með
    þessu frumvarpi. Það er ekki breyting í lagatextanum. Vegna þess að, eins
    og ég kom hér inn á áðan, þetta er stórt atriði. Þetta er siðferðileg
    spurning sem mér hefði fundist eðlilegra að Alþingi tæki ákvörðun um,
    <ns:bjalla/> að Alþingi ræddi frekar en að hæstv. ráðherra tæki upp
    einhliða og án umræðu hér við þingið einhvers konar kópíu af
    Evrópusambandslöggjöfinni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>