<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="dómsmrh." frhr="0" id="r2026-09-21T14:43:11" skst="ÞorbG" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:44:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:43:11">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil aftur nefna að þessi tilmæli breyta ekki
    almennum reglum um rétt til alþjóðlegrar verndar. Einstaklingar hafa eftir
    sem áður þann valkost að sækja um á þeim grundvelli en þetta er tekið í
    kjölfar svokallaðrar framkvæmdarákvörðunar ESB. Mér fannst ekki augljóst
    að gera þetta. Ég held að síðan megi segja úr hinni áttinni að það hefði
    kannski verið enn þá harðari nálgun að fara með þetta inn í lög en að gera
    þetta með þessum hætti. Það er á grundvelli þessarar 44. gr. sem við
    virkjum þennan fjöldaflótta og í því sambandi, þótt það sé meira verklag
    en þessi siðferðilega spurning sem hv. þingmaður nefnir, er ekki óeðlilegt
    að þessi ákvörðun komi þá frá ráðherra líka. En ég get ekki sagt annað en
    að ég skilji mjög vel þau sjónarmið að þetta þyki ekki augljóst. Þetta eru
    þá tvær breytingar í þessu og sá gluggi stendur eftir sem áður áfram opinn
    að geta sótt um á einstaklingsbundnum grundvelli. En ég horfði á þetta, ég
    get líka viðurkennt það, kalt þegar ég tók þessa ákvörðun.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>