<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:44:36" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 14:51:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:44:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hér er verið að ræða nálgun íslenskra
    stjórnvalda þegar kemur að flóttamönnum sem hingað koma frá Úkraínu. Það
    hafa orðið nokkrar breytingar á nálguninni, m.a. með norsku nálgunina til
    fyrirmyndar. Ég minnist þess að hafa spurt hæstv. ráðherra út í slík skref
    hér í lok síðasta þings þar sem var einmitt verið að ræða hvort menn vildu
    stíga þau skref sem Norðmenn hafa af einhverjum ástæðum stigið og gefið
    ákveðið fordæmi um frá því að stríðið hófst, fyrst með því að svæðisskipta
    Úkraínu tiltölulega snemma í þessu ferli og meta hvaða svæði teljast örugg
    þar og sömuleiðis með því að verða við ósk úkraínskra stjórnvalda um að
    ekki sé tekið við flóttamönnum við ákveðnar aðstæður nema að fengnu
    samþykki úkraínskra stjórnvalda um að menn hafi farið löglega úr landinu.
    Í Úkraínu ríkja auðvitað mjög ströng lög um að fólk fari ekki úr landi án
    þess að hafa uppfyllt skyldur sínar gagnvart því stríði sem þar
    geisar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég velti fyrir mér alla vega í þessari umræðu — ég tek fram að
    mitt mat á þessu frumvarpi er að hér sé, eins og ég hef skilið þetta, bara
    verið að framlengja núgildandi og ríkjandi ástand. Í stað þess að þessi
    tímabundna hópvernd eða sameiginlega vernd falli niður, og þau 5.000 eða
    6.000 manns sem hér eru endi þá á að sækja um einstaklingsbundna vernd hjá
    Útlendingastofnun, þá sé þetta framlengt þangað til annað kemur í ljós,
    þ.e. annaðhvort þegar stríðinu lýkur eða einhverjar aðrar breytingar
    verða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held hins vegar að útistandandi spurning fyrir íslensk
    stjórnvöld núna sé með hvaða hætti menn nálgast spurninguna um svæðin í
    Úkraínu og það eru mjög skýr alþjóðleg fordæmi fyrir því að taka það til
    skoðunar. Hæstv. ráðherra gaf til kynna að ekkert slíkt væri til skoðunar
    á vegum ráðuneytisins en ég myndi ekki hika við að hvetja hæstv. ráðherra
    til að taka slíkt til skoðunar. Við erum auðvitað að hugsa í víðum
    skilningi hvernig við fetum þetta einstigi á milli þess að við gætum að
    okkar eigin hagsmunum og hvernig við högum málum hér þannig að sem best
    gangi að hjálpa Úkraínu út frá okkar bæjardyrum séð. Og svo höfum við líka
    í huga hvernig úkraínsk stjórnvöld óska hverju sinni eftir því að þau ríki
    sem eru hliðholl þeim hagi málum. Það er alltaf þetta jafnvægi sem við
    erum að leita eftir, eins og t.d. að samþykkja ekki vernd þeirra sem ekki
    hafa uppfyllt herskyldu sína o.s.frv., sem er auðvitað flókin mórölsk
    spurning sem væri hægt að fara á dýptina í. Ég held nú samt að það séu
    alveg málefnaleg rök fyrir því að verða við þessum óskum úkraínskra
    stjórnvalda. Varðandi svæðin þá er það t.d. mat norskra
    innflytjendamálayfirvalda að það séu stór svæði í Úkraínu sem teljist
    samkvæmt þeirra mati „örugg“, eins örugg og kalla má svæði í ríki þar sem
    stríð er háð. En það er alla vega ólíkt mat eftir landsvæðum. Ég tel það
    einfaldlega verðuga spurningu hvort við eigum að taka tillit til þess og
    ég held að það megi hvetja hæstv. ráðherra til að taka þetta til skoðunar
    í sínu ráðuneyti.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil snöggvast nefna annan þátt í þessu. Í sambandi við allt sem
    heitir tímabundin vernd þá verða íslensk stjórnvöld að gæta þess í
    hvívetna, þegar við hugsum um verndarkerfi okkar, að það sem á að vera
    tímabundin vernd sé tímabundin ráðstöfun en ekki að það sé leið fyrir
    mikinn fjölda fólks inn í landið til að setjast varanlega að þegar það
    samræmist ekki markmiðum íslenskra stjórnvalda. Ef stjórnvöld hafa þau
    markmið að taka við miklum fjölda fólks til að flytja hingað til
    varanlegrar búsetu þá er það bara umræða út af fyrir sig. En hitt er að
    kerfin okkar verði að forsendu fyrir þróun sem við óskum okkur ekki. Það
    er einfaldlega alltaf mín ábending að stjórnvöld gæti þess í allri
    lagasetningu og reglugerðarvinnu að það sem á að vera tímabundið sé
    tímabundið. Þess vegna vildi ég gera ákveðinn fyrirvara við ákveðna umræðu
    í þessu frumvarpi þar sem er verið að tala um tilmæli og sjónarmið frá
    Evrópusambandinu og að ráðherraráðið hafi samþykkt tilmæli, þar sem er
    verið að leita að svona fyrirsjáanlegri og stöðugri og varanlegri lausn
    fyrir einstaklinga sem hafa dvalið um einhvern tíma á grundvelli þessarar
    tímabundnu verndar og séu svo að færa sig yfir í aðra dvalarleyfisflokka.
    Menn þurfa að vera alveg skýrir með það hvort þeir hafi þá stefnu að eftir
    að átökum lýkur geti fólk í stórum stíl sest að á Íslandi eða hvort
    markmið stjórnvalda sé mun heldur að menn fari aftur til síns heima eins
    og upphaflega hugsunin var með verndarkerfinu. Það hefur verið misbrestur
    á þessu í gegnum tíðina, enda festir fólk rætur og myndar ákveðin tengsl
    við samfélagið og hefur náttúrlega í mörgum tilvikum ákveðnar forsendur
    til að vera hér áfram. En ef það gerist í of stórum stíl, í meira mæli en
    íslensk stjórnvöld ætla sér, þá erum við ekki að nota kerfin okkar sem
    skyldi. Það er ákveðinn fyrirvari sem maður gerir við þetta um leið og
    maður hvetur ráðherra til að taka það til skoðunar hvort ekki eigi líka að
    fara yfir þessa svæðisskiptingu, t.d. að byrja á því að fá yfirsýn yfir
    það hvaðan menn hafa verið að koma hingað, frá hvaða svæðum þeir hafa
    verið. Það er hægt að máta þau svæði við þær lýsingar sem norsk yfirvöld
    hafa komið sér upp og fara þá í frekari umræðu hér í þingsal um það hvort
    ekki sé hyggilegt fyrir íslensk stjórnvöld að fara sömu leið og norsk
    stjórnvöld hafa gert eins og við höfum hvatt til á fyrri stigum. Nú er
    verið að gera það að þessu marki en ekki hvað svæðisskiptinguna
    varðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>