<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T14:51:12" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:01:05 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T14:51:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu
    sína sem og þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í umræðunni til þessa.
    Mér finnst hún upplýsandi og gagnleg. Það er af ýmsu að taka í þessu máli.
    Í grunninn held ég að það sé nú ríkur meiri hluti fyrir málinu hér á þingi
    og þessu uppleggi að við búum þannig um hnútana að lagaumgjörðin og
    regluverkið er viðkemur móttöku flóttafólks sé eins og gerist annars
    staðar á Norðurlöndunum og í Evrópu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það er samt auðvitað ekki fortakslaust heldur og þess vegna fannst
    mér fróðlegt að heyra í hæstv. ráðherra er hún gerði grein fyrir því í
    andsvörum við hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson að það hafi verið þungbær
    ákvörðun að taka er varðar þá skyldu eða skilyrði að úkraínskir karlmenn á
    herskyldualdri hafi afplánað þá skyldu sína af því að þetta er risastór
    siðferðileg spurning sem er þar að baki. Það kom mér í sjálfu sér á óvart
    að það væri hægt að breyta réttarstöðu þessa hóps með leiðbeiningum eða
    auglýsingu ráðherra. Frekar hefði maður haldið kannski að lögin sjálf
    settu einhver skilyrði hvað þetta varðar. Það er eitthvað sem þarf
    auðvitað að fara betur yfir í meðförum nefndarinnar. Ég skil það sem svo
    að þessar reglur, 44. gr. er við kemur móttöku fólks eða fjöldaflótta, séu
    í grunninn náttúrlega kannski heimildarákvæði frekar en annað. Eftir sem
    áður myndi maður ætla, án þess að ég viti það, að þessi venjulegu skilyrði
    er varða grundvöll alþjóðlegrar verndar, 37. gr., ættu hins vegar við og
    yrði ekki endilega breytt með leiðbeiningum ráðherra. Þetta er bara flókið
    úrlausnarefni. Ég ætla svo sem ekki að setjast í dómarasæti hvað þetta
    varðar en hef ríka samúð með ráðherranum þegar hún lýsir því að þetta hafi
    verið flókin eða mikil ákvörðun að taka og auðvitað eitthvað sem verður
    skoðað af allsherjar- og menntamálanefnd þegar málið kemur þangað
    inn.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er í annað skipti sem þetta frumvarp er til skoðunar. Það
    bárust umsagnir frá hinum og þessum aðilum hér áður fyrr, einmitt um
    einstaka þætti, til að mynda hvort það eigi að fella út þetta ákvæði um að
    þessir aðilar geti fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Aftur er þetta
    atriði sem verður einfaldlega skoðað í meðförum nefndarinnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér erum við með þetta mál. Ég hef áhuga á því að rekja og ræða
    stuttlega kannski þessa breytingu um að færa þetta verkefni er viðkemur
    móttöku flóttafólks úr félagsmálaráðuneytinu, eða skipulagið hvað það
    varðar, til dómsmálaráðuneytisins. Ég þekki svo sem ekki og veit ekki
    hvernig þessu er hagað annars staðar. Í grunninn geri ég ráð fyrir að
    flóttamannanefndin hafi með að gera málefni er tengjast einmitt
    félagsmálum upp til hópa. Það má svo sem skilja, og kemur fram í 9. gr.
    útlendingalaganna, að hlutverk flóttamannanefndarinnar er skipulag móttöku
    flóttamannahópa og hún hefur yfirumsjón með þeirri móttöku. Þetta er
    hlutverkið en hér er verið að færa það frá félagsmálaráðuneytinu til
    dómsmálaráðuneytisins og ég er enn nokkuð hissa á umfjölluninni í
    greinargerð með frumvarpinu á bls. 3 þar sem segir, með leyfi
    forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/158/s/0097.html-->

    <ns:mgr>„Ríkisstjórn Íslands ákvað 4. mars 2025 að málefni sem vörðuðu
    hlutverk og verkefni flóttamannanefndar skv. 9. gr. laga um útlendinga
    skyldu flutt til dómsmálaráðuneytisins frá félags- og
    húsnæðismálaráðuneyti.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er sem sagt ákvörðun ríkisstjórnarinnar 4. mars 2025. Svo
    erum við hér 18 mánuðum síðar að færa þessa ákvörðun í lög. Aftur átta ég
    mig ekki alveg á því hvað gerðist, ef þá eitthvað, við þessa ákvörðun
    ríkisstjórnarinnar 4. mars 2025.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ljóst má vera að verkefnið er ærið og ég átti hér orðastað við
    hæstv. ráðherra um áhyggjur sveitarfélagsins Borgarbyggðar til að mynda er
    varða hvernig það að taka á móti stórum hópi flóttafólks, sem eftir
    atvikum endar svo á sveitarstyrk, getur reynst litlum sveitarfélögum mikil
    byrði. Það þarf auðvitað að búa þannig um hnútana að þetta sé í einhvers
    konar jafnvægi. Það gengur ekki að opna svona úrræði eins og gert var á
    Bifröst þar sem tekið var móti mjög stórum hópi fólks og bíða svo bara og
    sjá til.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mér þótti fróðlegt að heyra og hlýða á orðaskipti hæstv. ráðherra
    við hv. þm. Árna Helgason. Ég held að það sé prýðishugmynd að gera athugun
    á því hvernig gengur, á aðlögun að íslensku samfélagi, atvinnuþátttöku og
    öðru. Það má skilja af ummælum sveitarstjórans í Borgarbyggð að þar séu
    uppi áhyggjur af eldri Úkraínumönnum í sveitarfélaginu sem eiga erfiðara
    með að finna sér atvinnu þar sem náttúrlega atvinnusvæðið og
    atvinnumöguleikar kannski þessa hóps akkúrat í nágrenni Bifrastar eru
    takmarkaðir. Því virðist sem þessi hópur kannski sérstaklega sé að
    leggjast býsna þungt á sveitarfélagið. Það er auðvitað verkefni að leysa
    og ég set þetta bara því miður í samhengi við þessa umfjöllun í
    greinargerðinni um að ríkisstjórnin taki ákvörðun um að þessi málaflokkur
    fari til dómsmálaráðuneytisins en lögin gera ráð fyrir því að það sé
    ráðherra félagsmála sem sjái um það. Aftur verður bara fróðlegt að ræða
    það í nefndinni og heyra ítarleg rök fyrir því að það teljist skynsamlegt
    að færa þetta hlutverk til dómsmálaráðuneytisins vegna þess að
    magatilfinningin mín er frekar á þá leið að þetta sé nú þegar öllu er á
    botninn hvolft frekar einmitt félagsmálaúrræði sem ætti þá frekar heima
    hjá félagsmálaráðuneytinu, þ.e. að dómsmálaráðuneytið, dómsmálaráðherra
    eftir atvikum, tekur ákvarðanir á grundvelli 44. gr. um hvaða hópi er
    tekið á móti, hvaða svæði eru undir o.s.frv. en þegar hópurinn er kominn
    hingað til landsins þá sé það kannski frekar félagsmálaráðuneytið sem tæki
    við því. En aftur, ég ætla ekki að kveða upp neina dóma hvað þetta varðar.
    Ég hlakka bara til að hlýða á frekari sjónarmið hvað þetta varðar, akkúrat
    um hvar þessi málaflokkur og þessi hópur ætti heima.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að endingu vil ég einmitt bara árétta það, eins og hefur komið
    fram hér í umræðum í þingsal, að það er auðvitað mikilvægt að reglurnar
    okkar séu sambærilegar því sem tíðkast erlendis og þá hvort heldur sem
    litið er til Evrópusambandsins, Noregs eða annarra ríkja. Ég sé ekki
    ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál á þessu stigi en hlakka til að
    skoða það nánar í meðförum allsherjar- og menntamálanefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>