<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:01:13" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:03:29 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:01:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langaði aðeins að fá fram sjónarmið hv.
    þingmanns t.d. á því sem hann nefndi í lok ræðu sinnar og varðar mikilvægi
    þess að íslenskar reglur séu í samræmi við, eins og hann nefndi það,
    reglurnar í kringum okkur. Hann nefndi Evrópusambandið sérstaklega og
    Noreg. Menn hafa oft nefnt Norðurlöndin í þessu sambandi en nú liggur það
    fyrir að meira að segja á Norðurlöndunum eru reglurnar nokkuð mismunandi.
    Þær eru t.d. mjög mismunandi á milli Svíþjóðar og Noregs og Danmerkur.
    Eitt sem mér fyndist nú hafa þurft að koma fram í ræðu hæstv. ráðherra er
    einmitt reifun á þessum reglum og sérstaklega þeim breytingum sem hafa
    t.d. átt sér stað á löggjöfinni í Noregi, þar sem Noregur tók nú fyrir
    a.m.k. ári síðan upp þá reglu að það væri heimilt að synja um alþjóðlega
    vernd ef umsækjandi væri fjarri átakasvæðum í Úkraínu. Ég hygg að sú regla
    hafi komið til eftir dóm hæstaréttar Noregs varðandi þetta þannig að þeir
    hafa fyrir löngu tekið upp einstaklingsbundna meðferð á umsóknum frá
    Úkraínu. Síðan í maí er það svo í Noregi að karlmenn á aldrinum 18–60 ára
    fá bara alls ekki neina tímabundna vernd á grundvelli fjöldaflótta. Í
    Danmörku eru reglurnar sambærilegar en þess utan er í Danmörku líka
    heimilt að afturkalla vernd þeirra sem eru á aldrinum 18–60 ára. Danir
    hafa þá reglu núna. Þannig að ég hlýt að spyrja hv. þingmann til hvaða
    átta hann vill líta í þessu sambandi þegar hann segir að íslenskar reglur
    þurfi að vera í samræmi við einhverjar reglur annarra ríkja. Eða kann að
    vera að Ísland eigi bara að setja sínar reglur með tilliti til hagsmuna
    Íslands á hverjum tíma?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>