<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:03:36" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:06:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:03:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er
    réttilega athugað að á endanum er það auðvitað okkar löggjafans að setja
    reglur um hvernig við viljum haga þessum málum. Ég held að það sé ríkur
    skilningur hér, í það minnsta hjá meiri hluta þingmanna, að við eigum að
    gæta þess að vera ekki með einhver sérúrræði sem geta þá verkað sem segull
    á þennan viðkvæma hóp sem hælisleitendur eru og fólk á flótta undan
    styrjöldum. Við erum bara það lítið samfélag að við ráðum á endanum ekki
    við það. Hvað varðar það, ef ég skildi hv. þingmann rétt, að hún væri að
    leita eftir afstöðu minni til þess hvort ég teldi forsvaranlegt að skipta
    Úkraínu upp í svæði, þá treysti ég mér ekki til þess að tjá mig eitthvað
    um það hér. Það kom svo sem fram í máli hæstv. ráðherra að úkraínsk
    stjórnvöld hefðu lagst gegn því. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Hins vegar viðurkenni ég það alveg að ég á mjög erfitt með að
    kyngja þessu ákvæði um að ráðherrar hafi með auglýsingu tekið ákvörðun um
    það að tímabundin vernd verði ekki veitt úkraínskum karlmönnum nema þeir
    geti sýnt fram á að þeir hafi haft heimild úkraínskra stjórnvalda til að
    yfirgefa landið og fullnægt herskyldu sinni þar. Mér finnst þetta
    náttúrlega, eins og hv. þm. Snorra Mássyni er tamt að tala um,
    óyndisúrræði. En þarna finnst mér í grunninn eiginlega keyra um þverbak og
    það kemur mjög illa við siðferðilega afstöðu mína hvað þetta varðar.
    <ns:bjalla/> Þetta er auðvitað eitthvað sem þarf að skoða aðeins betur í
    allsherjar- og menntamálanefnd. <ns:bjalla/> Ég tek undir það sem kom fram
    í máli hv. þm. Stefáns Vagns, að það væri auðvitað eðlilegt að svona
    risaatriði kæmi til kasta Alþingis og við, löggjafinn, <ns:bjalla/> myndum
    ákveða þetta en ekki ráðherrann.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BHar">Forseti biður hv. þingmenn um að virða
    tímamörkin.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>