<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:06:19" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:08:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:06:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kom í lokin inn á það sem ég
    ætlaði líka að velta upp, þ.e. hvort það sé raunverulega tækt eða hvort
    hæstv. ráðherra hafi lagaheimild til þess að setja auglýsingu um verklag
    sem þetta. Það er nefnilega ekkert kveðið á um það í lögum um útlendinga
    að hægt sé að setja skilyrði sem beinlínis lúta að þessu atriði.
    Útlendingalögin eru mjög margorð og nokkuð ítarleg um verkferla og
    möguleika fólksins til að fá hér alþjóðlega vernd og afgreiðslu þessara
    mála. Þegar veitt er heimild til ráðherra til að setja reglugerðir t.d. þá
    er það skýrt afmarkað. Þannig að ég velti því fyrir mér, hv. þingmaður mun
    væntanlega taka þetta upp í nefndinni og velta því fyrir sér hvort það sé
    lagaheimild fyrir því að setja auglýsingu. Ég ætla ekki að fullyrða hér að
    það væri óeðlilegt að veita slíka lagaheimild. Ég held að málaflokknum sé
    mikil þægð í því að það sé sveigjanleiki að einhverju leyti í þessu. Ég
    segi það nú kannski bara af því að hæstv. ráðherra hefur tilhneigingu til
    að vera ekki í miklum aktívisma í þessum málaflokki en það kunna að vera
    alls konar einstaklingar sem sitja á þessum stóli þannig að ég held að það
    sé ekki ráðlegt að veita of mikið svigrúm til að víkja frá skýrum ákvæðum
    laganna í þessu efni. Þetta er eitt sem ég er að velta fyrir mér, með
    herskylduna. Svo er auðvitað hitt líka því tengt, að Evrópusambandið
    leggur áherslu á að það þurfi að taka ákvarðanir sem eru bestar fyrir
    Úkraínu. Hvað er best fyrir Úkraínu? Er það best fyrir Úkraínu að veita
    hér fólki sem ætti að vera að berjast fyrir þessu landi frítt fæði og
    húsnæði á Íslandi eða annars staðar í Evrópusambandinu eða ekki? Ég veit
    það ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>