<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:08:45" skst="SÖH" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:10:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:08:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta eru
    auðvitað risastórar spurningar hvað varðar heimildir ráðherrans. Ég ætla
    ekkert að fjölyrða eitthvað um lögmæti þeirra. Allt eru þetta atriði sem
    þarf að skoða í allsherjar- og menntamálanefnd en ég hygg að upplegg
    ráðuneytisins sé það að 44. gr. sé heimildarákvæði til handa ráðherra til
    að ákveða sérreglur til hagræðingar eða flýtimeðferðar hvað viðkemur
    fjöldaflótta og á þeim grundvelli geti ráðherrann þrengt eigið vald að
    einhverju leyti. Eftir sem áður standa, hefði ég haldið, allar aðrar
    reglur laganna er varða alþjóðlega vernd á grundvelli einstaklingsbundins
    mats. En þetta er bara eitthvað sem við erum að ræða hér í 1. umræðu.
    Þetta er lagalega flókið og siðferðilega alveg ákaflega erfitt. Eins og
    kom fram í máli hv. þingmanns má svo sem alveg augljóst vera að þetta
    atriði er herskylduna varðar er auðvitað komið að beiðni úkraínskra
    stjórnvalda sem eru í þeirri hræðilegu stöðu að vera að manna framlínur í
    ógeðslegum stríðsátökum og þurfa því að beita þessu herskylduákvæði. Það
    er verið að stoppa í gatið hvað þetta varðar. En allt eru þetta auðvitað
    atriði sem verða skoðuð ítarlega í allsherjar- og menntamálanefnd og ég
    hlakka bara til þeirrar athugunar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>