<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:11:02" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:26:19 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:11:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagningu
    þessa máls og ræðu um hana. Mál þetta er reyndar endurflutt, eins og hún
    kom inn á, og núna með þeirri breytingu sem leiðir af tilmælum
    Evrópusambandsins, sem Ísland er alls ekki bundið af en hæstv. ráðherra
    kýs að taka upp hér a.m.k. inntak þeirra skilaboða eða þeirra tilmæla sem
    koma fram í reglu Evrópusambandsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Svona heilt yfir get ég í sjálfu sér tekið undir einhvers konar
    tilraun sem hér er gerð til þess að draga úr eða koma í veg fyrir þá þróun
    að sú vernd sem menn fá hér á grundvelli fjöldaflótta, eins og
    Úkraínumönnum hefur verið veitt hér — sem er mjög sjaldgæft úrræði, hefur
    kannski einu sinni verið tekið upp á Íslandi áður en var gert sérstaklega
    hér vegna ástandsins í Úkraínu — að sú vernd sem menn fái þar, sem er
    tímabundin vernd, geti ekki leitt til ótímabundins dvalarleyfis sem slík.
    Ég get alveg tekið undir það. Hins vegar óttast ég að önnur lagaákvæði
    geri þessa lagabreytingu í rauninni að engu vegna þess að eftir sem áður
    geta þessir einstaklingar sótt um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli
    ýmissa annarra sjónarmiða, m.a. þeirrar staðreyndar að þeir séu búnir að
    vera hér í fimm ár, og eftir að þessi breyting hér nær fram að ganga, í
    sex ár, og séu þannig komnir með þvílík tengsl við Ísland að ekki verði
    annað gert en að veita þeim ótímabundið dvalarleyfi óski þeir eftir því.
    Hvað varðar þessa breytingu sem er lögð til varðandi að lengja þetta
    tímabil úr fimm árum í sex, þ.e. hina tímabundnu vernd eða tímabundna
    dvalarleyfi á grundvelli fjöldaflótta, þá sýnist mér hún eingöngu vera í
    þeim tilgangi að fresta hinu óumflýjanlega sem er það að afgreiða stöðu
    þessa fólks þegar þessu tímabundna úrræði vegna fjöldaflótta sleppir. Það
    verði þá ekki gert núna á næstu mánuðum eða misserum heldur frestist um
    eitt ár. Það finnst mér bagalegt, sérstaklega í ljósi þeirra umsagna sem
    málið hefur fengið eftir samráðsgáttina, m.a. umsagnir frá sveitarfélögum
    sem benda á að það er auðvitað að skapast ófremdarástand vegna þessa hóps
    í sumum sveitarfélögum. Þessi sveitarfélög bera reyndar ábyrgð á því
    sjálf, þau buðu Úkraínumönnum að koma til sín. Ég nefni hérna Borgarbyggð
    sérstaklega og held meira að segja að það sé sérstaklega vísað til
    Borgarbyggðar í greinargerð með frumvarpinu — nei, það er nú reyndar ekki
    gert. En í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er bent á að að þetta
    fólk sem sveitarfélögin tóku á móti, sum hver, falli ekki undir gildissvið
    laga um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða og þurfi því að reiða sig
    á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga við 67 ára aldur. Fréttir hafa verið um
    einmitt þetta, sérstaklega fréttir frá Borgarbyggð sem hefur talið sig
    sérstaklega hlunnfarna af hálfu ríkisins vegna þessa. Þannig að ég sé í
    sjálfu sér ekki ástæðu fyrir því að lengja þetta áratímabil úr fimm árum í
    sex nema til þess einhvern veginn að ýta vandanum á undan sér. En gott og
    vel, menn þurfa þá einhvern tímann að horfast í augu við þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þá langar mig líka að nefna sérstaklega það sem hæstv. ráðherra
    nefndi í framsögu sinni um málið um að tilgangur tilmæla Evrópusambandsins
    hefði verið öðrum þræði sá að koma til móts við óskir úkraínskra
    stjórnvalda. Að mínu mati hefði nú ekki þurft óskir úkraínskra stjórnvalda
    til heldur leiðir það svolítið af eðli máls að menn hefðu þurft að huga að
    þessu í upphafi. Í upphafi skyldi endinn skoða. Ég gerði reyndar
    athugasemdir við það á sínum tíma þegar Evrópusambandið tók þá ákvörðun,
    og Ísland hljóp í kjölfarið á eftir því, algjörlega umfram alla skyldu, að
    veita öllum Úkraínubúum heimild til þess að fara og fá tímabundið
    dvalarleyfi í öllum ríkjum Evrópusambandsins. Þá vakti ég athygli á því að
    það væri ekki endilega víst að það væri til hagsbóta fyrir Úkraínu að gera
    það án nokkurra skilyrða. Aðallega hef ég haft áhyggjur því að með þessu
    væri vikið svo stórkostlega frá alþjóðlegum reglum um aðstoð við
    flóttamenn og fólk í stríðshrjáðum löndum, með því að veita öllum á
    grundvelli ríkisfangs rétt í öðrum ríkjum óháð því hvar viðkomandi hefur
    búið í landinu. Nú er Úkraína stórt land og ég treysti mér alveg til að
    fullyrða, þótt ég sé ekki kunnug staðháttum í Úkraínu, að öll Úkraína var
    alls ekki undir, var ekki stríðssvæði, og margir af þeim sem hafa komið
    hingað til Íslands hafa búið alla sína ævi fjarri stríðsátökum í Úkraínu.
    Á sama tíma búa Íslendingar í Úkraínu og hafa komið hingað í frí en snúa
    aftur til Úkraínu og búa þar. Þetta var að mínu mati svolítið gönuhlaup á
    sínum tíma sem er nú að koma mönnum í koll.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hinn anginn af þessu sem menn hefðu líka þurft að skoða er þessi
    spurning um það í landi þar sem ríkir herskylda, þar sem er her og menn
    eru í stríði og ríkið undir árás, hvort ríkinu sé einhver þægð í því að
    taka á móti mönnum og eftir atvikum konum, ég þekki ekki hvernig þetta er
    í Úkraínu, sem þurfa augljóslega samkvæmt eigin lögum að uppfylla
    herskyldu og hvort það hafi verið þessu ástandi til framdráttar að öll
    Evrópusambandsríkin tóku sig saman um að taka á móti hverjum þeim sem
    vildi fara frá Úkraínu. Þetta er ákvörðun sem er líka að koma mönnum í
    koll. Ég vil nefna þetta sérstaklega hér vegna þess að þegar þetta hefur
    verið nefnt þá hafa þeir örfáu sem hafa gert það frá upphafi stríðsins
    nánast verið úthrópaðir sem einhvers konar óvildarmenn Úkraínumanna, fyrir
    að benda á að það séu margar hliðar á þessum málum og að hagsmunum jafnvel
    Úkraínubúa sjálfra sé ekki endilega haldið á lofti með þessum aðgerðum. Og
    ég, virðulegur forseti, vil auðvitað frábiðja mér slíkan málflutning. Ég
    er hvorki pútínisti né styð Rússa og hef aldrei gert. Ég hef langan feril
    innan stjórnmála og utan enn lengri í baráttu gegn kommúnistunum í
    Sovétríkjunum og Rússlandi og hef stutt sjálfsákvörðunarrétt þessara þjóða
    sem hafa verið fyrrum fylgitungl Sovétríkjanna og Rússlands til
    sjálfstæðis. Það þarf hins vegar að vera eitthvert vit í vitleysunni og
    þess vegna hef ég ekki talið það eftir mér að benda á að viðbrögð
    Evrópusambandsins, og því miður Íslands líka á þessum tíma, voru
    arfavitlaus, arfaslök. Því miður bætir þetta frumvarp ekki í bætifláka
    fyrir það þótt hér sé reynt að gera það að einhverju marki, m.a. með
    auglýsingu sem hæstv. ráðherra hefur birt sem kveður á um það að menn fái
    hér ekki tímabundið dvalarleyfi á grundvelli fjöldaflótta nema sýna
    einhverja pappíra frá úkraínska hernum. Eftir stendur auðvitað spurningin:
    Geti menn ekki framvísað slíkum pappírum, geta þeir þá fengið hér
    alþjóðlega vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða, á grundvelli annarra
    reglna í útlendingalöggjöfinni? Það er algjörlega óleyst vandamál. Hæstv.
    ráðherra fannst mér, a.m.k. í andsvari við einn hv. þingmann hér fyrr,
    reyna svona að skjóta sér á bak við þá staðreynd að útlendingalögin
    heimila auðvitað öllum að sækja um alþjóðlega vernd. Mér fannst hæstv.
    ráðherra svolítið vísa til þeirra úrræða vegna þeirrar ákvörðunar sinnar
    að auglýsa það að menn fengju ekki vernd hér á grundvelli fjöldaflótta
    hafi þeir ekki sinnt herskyldu. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég bara nefni þetta vegna þess að eftir stendur samt sem áður
    spurningin sem úkraínsk stjórnvöld hljóta líka að spyrja: Ætlaði land eins
    og Ísland að fara að veita úkraínskum karlmönnum á aldrinum 18–60 ára
    alþjóðlega vernd hér á grundvelli mannúðarsjónarmiða? Það er spurningin.
    Ég hef ekki svar við því. Menn þurfa að spyrja hvað sé best fyrir Úkraínu
    en menn þurfa auðvitað líka að spyrja hvað sé best fyrir einstaklinginn,
    og ég er nú kannski þekktari fyrir það að taka frekar upp hanskann fyrir
    einstaklinga heldur en ríkin sjálf. En þetta er spurning sem ég tel að hv.
    allsherjar- og menntamálanefnd, sem fær þetta mál til umfjöllunar, þurfi
    aðeins að skoða þótt það sé ekki hluti af þessu frumvarpi vegna þess að
    nái þetta frumvarp fram að ganga og auglýsingin, sem hefur tekið gildi að
    mér skilst, mun reyna á önnur ákvæði útlendingalaganna sem getur haft
    margvíslegar afleiðingar. Annars vegar fyrir Úkraínu og herinn þar í landi
    en hins vegar fyrir íslenska hagsmuni og álag á innviði hér, eins og í
    samræmi við það sem bent er á í samráðskaflanum hér frá samtökum
    sveitarfélaga og fleirum. Þetta þarf allt að skoða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar síðan að lokum, eða næstum því að lokum, að nefna
    tvennt annað. Annars vegar er það, af því að mönnum er tíðrætt að segja að
    við þurfum að vera með sömu reglur á Íslandi og löndin í kringum okkur, að
    staðreyndin er sú að löndin í kringum okkur hafa ekki öll sömu reglur.
    Noregur hefur ekki sömu reglur og Evrópusambandslöndin. Noregur hefur ekki
    einu sinni sömu reglur og Danmörk eða Svíþjóð. Menn sníða sér stakk eftir
    vexti og menn búa til þær reglur í þeim löndum sem landið þarf og sem
    þjóna best efnahagslífi og hagsmunum þess ríkis. Þannig eiga reglurnar að
    vera. Ef þær eru í samræmi við eitthvað sem Evrópusambandið er að gera
    eigum við að sjálfsögðu að taka upp slíkar reglur. Og ég árétta það að ég
    er ekki á móti reglum frá Evrópusambandinu eða tilmælum frá
    Evrópusambandinu bara af því að þær koma þaðan. Ef þær henta hagsmunum
    Íslands þá eigum við sannarlega að taka þátt í eða nýta okkur það að
    einhver er búinn að upphugsa einhverjar reglur og innleiða þær hér. En ef
    ekki eigum við að sníða okkar eigin reglur. Noregur er það ríki í Evrópu
    sem hefur í rauninni leitt ákvarðanatöku þegar kemur að þessum úkraínsku
    farendum með breytingum fyrir einu ári síðan og Evrópusambandið er í raun
    að fylgja í kjölfarið á því sem Noregur innleiddi fyrir ári.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum vil ég nefna það að ég hvet hv. efnahags- og
    viðskiptanefnd líka til þess að skoða sérstaklega það sem virkar kannski
    saklaust hér í þessu frumvarpi sem er flutningur á málaflokknum um
    flóttamannanefnd frá félagsmálaráðuneytinu yfir í dómsmálaráðuneytið. Það
    eru engin sjónarmið að baki því sérstaklega rakin. Það eru ríkar ástæður
    fyrir því að þessi málaflokkur var settur undir félagsmálaráðuneytið á
    sínum tíma sem varða auðvitað innviðina hér og félagsmálin almennt. Ég
    ætla ekki að fullyrða að það gæti verið óhagstætt að flytja þetta í
    dómsmálaráðuneytið en þetta þarf að skoða sérstaklega. Þetta er ekki bara
    lítil lagatæknileg breyting heldur þarf efnislega að skoða það.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>