<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:26:27" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:32:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:26:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. dómsmálaráðherra
    Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir framsöguna svo og hv. þingmönnum
    sem tekið hafa til máls í umræðunni. Eins og fram hefur komið er málið
    endurflutt með tilteknum breytingum sem eru til komnar vegna ákvörðunar
    Evrópusambandsins um framlengingu tímabundinnar verndar flóttafólks frá
    Úkraínu á Schengen-svæðinu til 4. mars 2028. Frumvarpið sem við erum að
    fjalla um hér snýst um breytingar á lögum um útlendinga og hefur í stórum
    dráttum tvíþætt markmið. Annars vegar að tryggja að íslensk stjórnvöld
    hafi áfram nauðsynlegt lagalegt svigrúm til að veita tímabundna vernd
    vegna fjöldaflótta frá Úkraínu í samræmi við þróun mála í Evrópu og hins
    vegar að skýra betur eðli þeirrar verndar og þau úrræði sem taka við þegar
    henni lýkur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frá því að Rússlandsher réðst inn í Úkraínu árið 2022 hafa
    Íslendingar, líkt og aðrar Evrópuþjóðir, sýnt samstöðu með úkraínsku
    þjóðinni. Þúsundir einstaklinga hafa fengið hér skjól og notið
    tímabundinnar verndar. Það hefur verið mikilvægt mannúðarverkefni og
    ekkert í þessu frumvarpi breytir þeirri grundvallarstefnu. Markmið
    íslenskra stjórnvalda er að veita fólki vernd þegar það flýr stríð og
    ofsóknir og það stendur óbreytt. Með frumvarpinu er lagt til að
    hámarkstími tímabundinnar verndar vegna fjöldaflótta verði lengdur úr fimm
    árum í sex. Sú breyting er fyrst og fremst tæknilegt og nauðsynlegt
    viðbragð við ákvörðun Evrópusambandsins um að framlengja verndarkerfið til
    mars 2028. Með þessu tryggjum við að íslensk löggjöf geti fylgt þeirri
    sameiginlegu nálgun sem ríki í Evrópu hafa mótað gagnvart þeim sem hafa
    flúið stríðið í Úkraínu. Jafnframt er lagt til að fella brott sérstaka
    heimild sem veitir einstaklingum á grundvelli tímabundinnar verndar
    sjálfstæðan farveg að mannúðarleyfi þegar verndartímanum lýkur. Mikilvægt
    er að halda því til haga að með þeirri breytingu er ekki verið að svipta
    fólk möguleikunum á áframhaldandi dvöl á Íslandi. Þeir sem uppfylla
    skilyrði laga um útlendinga geta áfram sótt um dvalarleyfi á öðrum
    grundvelli, t.d. vegna atvinnu, náms eða fjölskyldutengsla. Umsóknir
    þeirra verði áfram metnar á einstaklingsbundnum grundvelli samkvæmt
    almennum reglum laganna. Frumvarpið byggir þannig á þeirri hugsun að
    tímabundin vernd sé einmitt tímabundið neyðarúrræði, þ.e. úrræði sem gerir
    það að verkum að hægt er að bregðast hratt við þegar fjöldi fólks flýr
    afmarkað svæði vegna stríðs eða annarra stórfelldra hamfara. Því er ekki
    ætlað að koma í stað hefðbundinna dvalarleyfiskerfa eða alþjóðlegrar
    verndar. Með frumvarpinu er þessi grundvallarhugsun einfaldlega skýrð
    betur í íslenskum lögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Í samráðsferli um frumvarpið komu fram áhyggjur frá
    mörgum þeim sem njóta tímabundinnar verndar hér á landi. Þær áhyggjur ber
    að taka alvarlega. Margir hafa sest hér að, komið börnum sínum í skóla,
    tekið þátt í atvinnulífi og myndað tengsl við íslenskt samfélag. Það er
    því rétt að undirstrika að frumvarpið felur hvorki í sér afturvirka
    réttindaskerðingu né sjálfvirka brottvísun fólks þegar tímabundinni vernd
    lýkur. Íslensk stjórnvöld verða áfram bundin af alþjóðlegum skuldbindingum
    sínum, þar á meðal banninu við endursendingu einstaklinga í aðstæður þar
    sem þeir eiga yfir höfði sér ofsóknir eða aðra alvarlega hættu. Sérhver
    ákvörðun um áframhaldandi dvöl eða brottför verður eftir sem áður byggð á
    einstaklingsbundnu mati og lögbundnum málsmeðferðarreglum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við meðferð þessa máls á síðasta löggjafarþingi bárust hv.
    allsherjar- og menntamálanefnd fjölmargar umsagnir frá aðilum sem starfa
    með flóttafólki og börnum, svo sem sveitarfélögum og félögum á sviði
    mannréttinda. Meðal þeirra voru Alþýðusamband Íslands, Barnaheill, Rauði
    krossinn á Íslandi og fleiri sérfræðiaðilar á sviði útlendingaréttar og
    verndar flóttafólks. Í umsögnum þessara aðila komu fram verulegar áhyggjur
    af þeirri breytingu að afnema sérstaka heimild til mannúðarleyfis að
    lokinni tímabundinni vernd. Bent var á að margir úr hópi úkraínskra
    flóttamanna hefðu nú dvalið hér árum saman, tekið virkan þátt í
    atvinnulífi, komið börnum sínum fyrir í íslensku skólakerfi og myndað
    sterk samfélagsleg tengsl. Þá var sérstaklega bent á stöðu barna og
    fjölskyldna sem hafa fest rætur og mikilvægi þess að stjórnvöld skapi
    fyrirsjáanleika um framtíð þeirra. Þessar ábendingar eigum við að taka
    alvarlega. Þær minna okkur á að á bak við lagagreinar og stjórnsýsluleg
    úrræði eru einstaklingar, fjölskyldur og börn sem hafa byggt upp líf sitt
    hér við erfiðar aðstæður í sínu heimaríki. Jafnframt verður þó að líta til
    þess að tímabundin vernd var frá upphafi hugsuð sem neyðarúrræði vegna
    fjöldaflótta. Það er því eðlilegt að stjórnvöld leitist við að skýra betur
    tímabundið eðli úrræðisins og samræma framkvæmdina þeirri þróun sem á sér
    stað meðal annarra Evrópuríkja. Verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er
    því að finna jafnvægi; annars vegar að viðhalda trúverðugleika og gæta að
    því að tilgangur tímabundinnar verndar sem sérstaks neyðarúrræðis sé skýr
    og hins vegar að tryggja að þeir einstaklingar sem hafa raunverulega byggt
    upp líf sitt hér á landi og uppfylla skilyrði laga um útlendinga hafi
    raunhæfa og sanngjarna möguleika til áframhaldandi dvalar hér á landi þótt
    á öðrum lagagrundvelli sé. Það jafnvægi tel ég að Alþingi þurfi að hafa að
    leiðarljósi við áframhaldandi meðferð þessa máls.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Frumvarpið felur einnig í sér breytingu á skipan
    flóttamannanefndar þannig að ábyrgð á henni flyst formlega til ráðherra
    útlendingamála í samræmi við þá verkaskiptingu sem ríkisstjórnin hefur
    þegar ákveðið. Um er að ræða stjórnsýslulega breytingu sem stuðlar að
    skýrari ábyrgð og einfaldari stjórnsýslu. Í grófum dráttum má því segja að
    frumvarpið hafi þrjú meginmarkmið: að tryggja áframhaldandi vernd á meðan
    hennar er þörf, að samræma íslenskt regluverk þeirri þróun sem á sér stað
    í Evrópu og að varðveita skýrt tímabundið eðli þess úrræðis sem tímabundin
    vernd er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum, frú forseti, þá skiptir máli að Ísland sé áfram ábyrgt
    og traust ríki í alþjóðlegu samstarfi. Við eigum að standa vörð um mannúð,
    virða alþjóðlegar skuldbindingar okkar og sýna samstöðu með þeim sem
    neyðast til að flýja heimkynni sín. Jafnframt eigum við að tryggja að
    löggjöf sé skýr, fyrirsjáanleg og í samræmi við það hlutverk sem
    verndarúrræðum er ætlað að gegna. Með þessu frumvarpi er leitast við að ná
    því jafnvægi. Ég hvet því til vandaðrar og málefnalegrar umræðu um málið
    hér á hinu háa Alþingi en málið gengur nú til hv. allsherjar- og
    menntamálanefndar við lok þessarar umræðu og verður þar til
    meðferðar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>