<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:33:07" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:35:18 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:33:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu og hann
    nefndi þarna einmitt að margir Úkraínumenn hafa myndað tengsl og komið
    börnum í skóla og við vitum hvernig það er. Það á náttúrlega við um alla
    sem koma hingað og búa hér til skemmri tíma en í greinargerðinni er
    einmitt nefnt að það sé mikilvægt að Ísland fylgi samræmdri áætlun
    Evrópusambandsins og samstarfsríkja Schengen hvað varðar þessa úkraínsku
    flóttamenn og skeri sig ekki úr hvað varðar framkvæmd annarra ríkja. Hér
    er sagt: </ns:mgr>

    <ns:mgr>„Þá er mikilvægt að Ísland líkt og önnur ríki í Evrópu, vinni að
    því markmiði með úkraínskum yfirvöldum að þau endurheimti eigin
    ríkisborgara að stríði loknu.“</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/158/s/0097.html-->

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig hann meti þetta í ljósi
    annarra ákvæða útlendingalaganna og svona hálfpartinn ádrátt sem mér hefur
    þótt greina í máli hæstv. ráðherra um að hér sé verið að breyta því að
    menn fái ekki varanlegt eða ótímabundið dvalarleyfi að loknu
    hópflóttamannaleyfinu en menn geti eftir sem áður sótt um slíkt og fengið
    það með vísan til tengsla við landið. Telur hv. þingmaður nógu mikið að
    gert til þess að mæta því sem segir hér, að vinna að því markmiði með
    úkraínskum yfirvöldum að þau endurheimti eigin ríkisborgara? Hvernig sér
    hv. þingmaður það fyrir sér í framtíðinni? Hefur hann trú á því að margir
    þeirra sem hingað eru komnir á grundvelli hópflóttadvalarleyfis snúi aftur
    til Úkraínu?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>