<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:35:23" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:37:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:35:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar
    andsvar. Ég held að þeir séu á sjöunda þúsund eða rúmlega 6.000
    Úkraínumenn sem hafa komið hingað á grundvelli þessa fjöldaflótta
    svokallaða, sem er tiltekið úrræði við tilteknar aðstæður. Í fyrsta lagi
    vil ég nefna að ég hygg að þeir sem hingað hafa leitað á þessum grundvelli
    hafi hug á því að fara til baka til síns heimalands, a.m.k. þegar þeir
    komu hingað fyrst. Ég held að ég geti sagt, eins og ég held að það hafi
    komið fram í ræðu hv. þingmanns áðan, að kannski hefði mátt endinn skoða í
    upphafi. Ég held að enginn hafi búist við svona löngu stríði þegar
    Rússland réðst inn í Úkraínu heldur hafi Evrópa, og þar með talið við,
    brugðist við og tekið á móti Úkraínufólki sem flúði þaðan vegna stríðsins.
    </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég held í fyrsta lagi að Úkraínufólk vilji fara til baka. Í öðru
    lagi held ég að sjálfsögðu að úkraínsk yfirvöld vilji fá fólkið sitt til
    baka, hvort tveggja frá Íslandi og öðrum löndum sem það hefur leitað til.
    Ég hef trú á því að jafnvel þó svo að einhverjir muni áreiðanlega á
    grundvelli annarra úrræða en að fá mannúðarleyfi, á grundvelli
    fjöldaflóttans, óska hér eftir ótímabundnu dvalarleyfi. Ég hygg að það
    verði alveg klárlega einhver fjöldi Úkraínufólks sem gerir það. Ég vísaði
    til þess í ræðu minni að það hefði komið töluvert af umsögnum frá
    Úkraínufólki, það var meðan málið var í samráðsgátt, það var ekki svo
    mikið við meðferð málsins á þingi í fyrra. En það var fólk sem hafði
    áhyggjur af stöðu sinni. Þetta voru á þriðja hundrað umsagnir, alls ekki
    6.000 eða þess háttar, þannig að á þessum tímapunkti ætla ég ekki að hafa
    miklar áhyggjur af þessu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>