<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:37:40" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:39:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:37:40">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Nei, það er alveg öruggt að örugglega margt af
    því fólki hefur einhverjar réttmætar væntingar um að fá að vera hérna
    áfram og verður það örugglega. En ég veit ekki einu sinni, ég hef ekki
    lesið þetta svo grundigt eða svo ítarlega, hvort frumvarpið komi í veg
    fyrir að fólk sem hingað er komið nú þegar geti ekki hoppað á milli landa.
    En ég sé að það er verið að reyna að koma í veg fyrir að hópflóttavernd í
    einu landi veiti ekki réttindi í öðru landi það var t.d. eitt sem ekki var
    hugað að í upphafi. Þetta kemur í ljós og auðvitað vonar maður það að
    Úkraína hressist og það verði þvílík uppbygging þar að það laði að fólkið
    sem á rétt á að búa þarna til þess að byggja upp landið. Ég vona það og
    það verði fyrr en seinna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hitt atriðið sem ég ætla að spyrja hv. þingmann um er nú kannski
    flóknari spurning og siðferðilegri, af því að hv. þingmaður nefndi það að
    hermenn gætu sótt um á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga Íslendinga og
    verið að vísa í alþjóðaflóttamannareglur væntanlega. Hann var reyndar ekki
    að tala um hermennina kannski en ég ætla að spyrja sérstaklega um
    hermennina, þá sem skulda herskyldu í Úkraínu. Hvernig sér hv. þingmaður
    fyrir sér afgreiðslu slíkra mála? Þeir koma þá ekki núna í gegnum
    hópflóttaverndina af því það verður útilokað fyrir þá að fá
    hópflóttavernd, en þeir gætu hins vegar sótt um vernd á Íslandi með vísan
    til þeirra þátta sem hv. þingmaður nefndi, sem eru ógn og stríð og annað.
    Telur hv. þingmaður hermenn eða einstaklinga á herskyldualdri geta fallið
    þar undir?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>