<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-21T15:40:00" skst="GrímG" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:42:12 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:40:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="97">
      <ns:málsheiti>útlendingar</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar
    síðara andsvar. Þessi umræða er, eins og hv. þingmaður sagði, siðferðisleg
    og þar af leiðandi erfið. En svo ég taki af allan vafa um það þá nefndi ég
    ekki hermenn heldur var að vísa til þess fólks sem hér væri þegar þessu
    fjöldaflóttaleyfi lýkur í mars 2028. Þá getur það sótt um á grundvelli
    tengsla við landið, atvinnu eða náms. Hins vegar varðandi þá einstaklinga
    sem hingað myndu leita á næstu misserum, karlmenn sem ekki hafa lokið
    herskyldu eða sinni borgaralegu skyldu í Úkraínu, sé ég ekki í fljótu
    bragði að þeir falli undir önnur ákvæði laganna um að fá hér alþjóðlega
    vernd. Ég ætla auðvitað ekki að útiloka það, en það væri þá klárt að það
    væri í andstöðu við þessa breytingu sem var gerð um að þeir sem ekki hefðu
    staðið skil á sinni borgaralegu skyldu í Úkraínu gætu ekki fengið hér
    alþjóðlega vernd á grundvelli fjöldaflótta — að þeim yrði þá veitt
    alþjóðleg vernd á grundvelli annarra þátta, ég sé það ekki fyrir mér. Hins
    vegar er þetta, eins og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson sagði hér áðan,
    auðvitað afskaplega erfið spurning, erfið umræða og jafnvel þótt maður
    taki enga afstöðu til þess hvort ekki hefði verið eðlilegra að hafa þetta
    í lögunum eða í reglum ráðherrans þá er þetta siðferðileg spurning. En ég
    held að það sé alveg ljóst, jafnvel þótt það sé kaldranalegt, að ef við
    værum með öðruvísi reglur en nágrannalöndin þá myndi sækja hingað fólk sem
    myndi fá neikvætt svar í okkar nágrannalöndum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>