<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-21T15:42:35" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:51:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:42:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="98">
      <ns:málsheiti>netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og
      fjarskiptatækni.</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um
    netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Frumvarpið var
    lagt fyrir á 157. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er nú lagt
    fram að nýju óbreytt. Frumvarpið hefur það að markmiði að innleiða í
    íslenskan rétt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/881,
    svonefnda netöryggisgerð sem þegar hefur verið tekin upp í EES-samninginn
    með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2023.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Stafræn umbreyting samfélagsins hefur á
    undanförnum árum skapað gríðarleg tækifæri til verðmætasköpunar,
    skilvirkni og bættrar þjónustu. Um leið hefur hún aukið áhættu. Netógnir
    eru orðnar flóknari, skipulagðari og hafa víðtækari áhrif en áður. Truflun
    á stafrænum kerfum getur haft áhrif á mikilvæga innviði, fyrirtæki og
    daglegt líf almennings. Frumvarp þetta er liður í því að efla traust,
    öryggi og samkeppnishæfni Íslands á stafrænum innri markaði
    Evrópu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Markmið reglugerðarinnar sem frumvarpinu er ætlað að innleiða er
    tvíþætt: annars vegar að styrkja hlutverk Netöryggisstofnunar
    Evrópusambandsins, ENISA, og hins vegar að koma á samræmdu evrópsku
    netöryggisvottunarkerfi fyrir vörur, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga-
    og fjarskiptatækni. Netöryggisstofnun Evrópusambandsins var upphaflega
    sett á laggirnar árið 2004 en með þessari reglugerð var stofnuninni veitt
    varanlegt umboð og hlutverk hennar víkkað verulega. Hún gegnir nú
    lykilhlutverki í, í fyrsta lagi stefnumótun og ráðgjöf á sviði netöryggis
    innan Evrópu, í öðru lagi samhæfingu viðbragða við netógnum, í þriðja lagi
    eflingu getu aðildarríkja og í fjórða lagi þróun sameiginlegra evrópskra
    netöryggisvottunarkerfa. Ísland tekur þátt í þessu samstarfi á grundvelli
    EES-samningsins og með frumvarpi þessu er lagður skýr grundvöllur að
    virkri þátttöku okkar í þeirri samvinnu. Þetta er sérstaklega mikilvægt
    fyrir smærri ríki enda virða netógnir ekki landamæri. Með aðild að
    sameiginlegri evrópskri umgjörð nýtum við sameiginlega sérfræðiþekkingu,
    greiningar- og viðbragðsgetu sem erfitt væri að byggja upp að fullu ein og
    óstudd. Evrópska netöryggisvottunarkerfið byggist á því að skapa
    sameiginleg viðmið og fullvissa sig um öryggi tæknilausna. Með því er
    stuðlað að auknu trausti notenda og komið í veg fyrir að hvert ríki þrói
    sitt eigið ósamræmda kerfi. Þannig er dregið úr kostnaði fyrirtækja sem
    starfa yfir landamæri og innri markaður Evrópska efnahagssvæðisins
    styrktur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Rétt er að gera sérstaklega grein fyrir því hvað felst í
    netöryggisvottun samkvæmt frumvarpinu, þ.e. hvaða viðfangsefni geta fallið
    undir slíka vottun. Í fyrsta lagi getur vottun tekið til vöru, svo sem
    hugbúnaðar, vélbúnaðar eða annars búnaðar sem er hluti af net- og
    upplýsingakerfum. Í öðru lagi getur hún tekið til þjónustu, t.d.
    skýjaþjónustu eða annarrar stafrænnar þjónustu sem byggir á slíkum kerfum.
    Í þriðja lagi getur vottun tekið til ferla, þ.e. þeirra aðferða og
    verklags sem notað er við hönnun, þróun, afhendingu og rekstur
    tæknilausna. Þetta er mikilvægt, virðulegi forseti, vegna þess að öryggi
    stafrænnar þjónustu ræðst ekki eingöngu af vörunni sjálfri heldur einnig
    af því hvernig hún er byggð upp, rekin og hvernig henni er haldið við. Með
    því að ná til allra þessara þátta stuðlar vottunarkerfið að heildstæðri
    nálgun á netöryggi og auknu trausti í stafrænu umhverfi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mikilvægt er að árétta að samkvæmt reglugerðinni er
    netöryggisvottun almennt valkvæð. Aðilar á markaði meta sjálfir hvort þeir
    óski eftir vottun en slík vottun getur aukið traust, styrkt stöðu þeirra í
    samkeppni og auðveldað aðgang að mörkuðum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til að Fjarskiptastofa
    verði landsbundið netöryggisvottunaryfirvald hér á landi. Stofnunin býr
    þegar yfir víðtækri reynslu á sviði net- og upplýsingakerfa og gegnir
    lykilhlutverki í netöryggismálum samkvæmt gildandi lögum. Í frumvarpinu er
    kveðið á um að sá aðili sem óskar eftir netöryggisvottun skuli bera allan
    kostnað sem af henni hlýst. Þetta á við um undirbúning, samræmismat,
    útgáfu vottorðs og eftir atvikum þann kostnað sem hlýst af útvistun
    verkefna skv. 4. gr. frumvarpsins. Þetta er grundvallaratriði af tveimur
    ástæðum. Í fyrsta lagi er vottunin valkvæð. Það væri því hvorki
    málefnalegt né réttlátt að íslenskir skattgreiðendur bæru kostnaðinn af
    því að einstök fyrirtæki, innlend eða erlend, kjósi að afla sér vottunar
    til að styrkja eigin markaðsstöðu. Í öðru lagi er þetta mikilvægt til að
    tryggja að Ísland verði ekki vettvangur svonefndrar vottunarferðaþjónustu,
    þar sem fyrirtæki sem hafa engin raunveruleg tengsl við Ísland leiti
    hingað eingöngu til að fá útgefin vottorð frá Fjarskiptastofu með
    tilheyrandi stjórnsýslu- og sérfræðikostnaði fyrir íslenska ríkið. Með því
    að kveða skýrt á um fulla kostnaðarþátttöku umsækjanda er tryggt í fyrsta
    lagi að fjárhagsleg ábyrgð liggi hjá þeim sem njóta ávinningsins, í öðr
    lagi að Fjarskiptastofa geti sinnt sínum kjarnahlutverkum án þess að það
    leiði til ósanngjarns álags á ríkissjóð og í þriðja lagi að hvatar séu
    eðlilegir og byggðir á raunverulegri þörf fyrir vottun en ekki á mögulegum
    fjárhagslegum ávinningi af því að nýta íslenska stjórnsýslu án
    endurgjalds.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið veitir jafnframt Fjarskiptastofu nauðsynlegar heimildir
    til eftirlits, upplýsingaöflunar og beitingar viðurlaga enda kveður
    reglugerðin á um að aðildarríki skuli setja skilvirk, hófleg og letjandi
    viðurlög vegna brota. Fyrirmyndir að fjárhæðum dagsekta og
    stjórnvaldssekta eru fengnar úr lögum um Fjarskiptastofu og lögum um
    öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Þær eru því í samræmi
    við það sem þekkist á skyldum sviðum íslensks réttar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið hefur verið unnið í samráði við Fjarskiptastofu og haft
    var opið samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Í umsögnum var m.a. lögð
    áhersla á að ekki yrði gengið lengra en reglugerðin krefðist og að vottun
    yrði áfram valkvæð. Áhrif frumvarpsins á atvinnulífið eru þannig takmörkuð
    að því leyti að það leggur ekki nýjar skyldur á fyrirtæki umfram það sem
    leiðir af reglugerðinni sjálfri. Þeir aðilar sem kjósa að afla sér
    vottunar bera sjálfir kostnað af henni. Á móti geta þeir notið ávinnings í
    formi aukins trausts og bættrar samkeppnisstöðu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Netöryggi er samfélagslegt öryggismál. Öruggir
    stafrænir innviðir eru forsenda efnahagslegs stöðugleika, verndar
    persónuupplýsinga og trausts í viðskiptum og opinberri þjónustu. Með
    frumvarpi þessu er stigið mikilvægt skref til að samræma íslenskt
    regluverk evrópskum viðmiðum, styrkja innlenda umgjörð og efla alþjóðlegt
    samstarf á þessu sviði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hef þá gert grein fyrir efni frumvarpsins og
    vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og greinargerðar sem fylgir
    því. Ég legg til að að lokinni 1. umræðu verði málinu vísað til hv.
    umhverfis- og samgöngunefndar og til 2. umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>