<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="innvrh." frhr="0" id="r2026-09-21T15:52:09" skst="EyjÁ" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-21 15:56:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="9" lgþ="158" tími="2026-09-21T15:52:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="99">
      <ns:málsheiti>leiðarmerki og öryggi siglinga</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um
    leiðarmerki og öryggi siglinga. Frumvarpið var lagt fram á 157.
    löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram að nýju
    óbreytt. Markmið frumvarpsins er að tryggja öruggar og greiðar siglingar í
    kringum Ísland með notkun vita og annarra leiðarmerkja. Ráðuneytið vann
    frumvarpsdrögin í nánu samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands,
    Samgöngustofu og Vegagerðina.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Síðan núgildandi lög um vitamál voru sett hefur
    þjóðfélagið breyst mikið. Sjósækinn iðnaður hefur aukist með tilheyrandi
    mannvirkjum í hafi og á hafi. Kallað hefur verið eftir því að öryggi
    siglinga sé tryggt samhliða þessum breytingum. Með frumvarpinu er ætlunin
    að einfalda rekstur leiðbeiningakerfa siglinga á Íslandi og skýra
    skiptingu verkefna milli aðila, til að mynda samhljóm við aðra málaflokka
    samgangna án þess að dregið sé úr kröfum um öryggi. Stefnt er að því að
    tryggja að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sem ríkið hefur
    undirgengist. Ísland er aðili að Alþjóðasiglingamálastofnuninni, IMO, og
    hefur undirgengist alþjóðlegar skuldbindingar á sviði siglinga. Ísland er
    jafnframt aðili að Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum, IALA. Meðal
    þeirra krafna sem Ísland hefur undirgengist er að merkja öruggar
    siglingaleiðir með ákveðnum hætti og færa þær inn á sjókort ásamt því að
    fylgja alþjóðlegum tilmælum og viðmiðum við uppsetningu leiðbeiningakerfa
    fyrir sjófarendur. Í frumvarpinu er kynnt nýtt ákvæði sem fjallar
    sérstaklega um áhættumat siglinga en kallað hefur verið eftir
    lagabreytingum til að tryggja lagastoð fyrir slíku áhættumati og skýra
    betur framkvæmd þess og hver skuli bera kostnað af því.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í frumvarpinu er einnig að finna heimild fyrir ráðherra til að
    setja reglugerð með nánari ákvæðum um áhættumat siglinga. Tryggja þarf að
    mannvirki séu ekki reist í eða á hafi nema áhættumat siglinga og þær
    mildunaraðgerðir sem áhættumatið kveður á um hafi verið framkvæmd. Þetta
    er mikilvægt atriði. Alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á sviði
    siglingaöryggis sem leiða af aðild Íslands að Alþjóðasamningi um öryggi
    mannslífa á hafinu, eða SOLAS, Safety of Life at Sea, kveða á um skyldur
    ríkja til að tryggja öruggar siglingar. Áhættumat siglinga er viðurkennd
    aðferð til að uppfylla þær skyldur og styður við markmið
    samningsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í frumvarpinu er ákvæðum er varða tilkynningar til sjófarenda og
    ákvæðum um farartálma í sjó breytt til samræmis við gildandi framkvæmd.
    Heimild stjórnvalda til að kveða á um skipulag umferðar- og leiðsögukerfa
    á sjó er tryggð ásamt heimild til að takmarka siglingaumferð á ákveðnum
    svæðum. Í frumvarpinu eru ákvæði um leiðarmerki útfærð þannig að þau taki
    ekki eingöngu til lands- og hafnarvita heldur einnig annarra leiðarmerkja.
    Þá er tryggt að öll leiðarmerki rati í vitaskrá, sjókort og önnur
    sjóferðagögn. Í frumvarpinu er lögð til heimild til að krefja þann sem
    óskar breytinga á vitakerfi landsins um greiðslu kostnaðar við slíkar
    breytingar og heimild Vegagerðarinnar til að grípa til nauðsynlegra úrbóta
    á leiðarmerkjum á kostnað hafnarstjórnar eða eiganda skýrð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir helstu efnisatriði
    frumvarpsins og vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og
    greinargerðar sem því fylgir. Það er mitt mat að samþykkt frumvarpsins
    muni stuðla að auknu öryggi siglinga í kringum Ísland. Ég legg til að
    eftir 1. umræðu verði málinu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar
    og til 2. umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>