<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:30:51" skst="GIK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:32:50 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:30:51">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi
    fatlaðs fólks hefur verið lögfestur og hefur einnig viðauki hans verið
    fullgiltur. Með lögfestingu hans og fullgildingu viðaukans á að koma í veg
    fyrir hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og að fötluðu fólki sé
    tryggð árangursrík réttindavernd gegn mismunun á öllum sviðum. Þá er
    spurningin þegar maður les eftirfarandi, með leyfi forseta: <!--https://www.vr.is/um-vr/log-og-reglugerdir/--></ns:mgr>

    <ns:mgr>„Félagsfólk sem hættir störfum á vinnumarkaði vegna örorku getur
    verið áfram félagsfólk, þó án þess að njóta kjörgengis í félaginu, gegn
    greiðslu félagsgjalds til VR …“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er í lögum hjá einu stærsta verkalýðsfélagi landsins, VR, og
    er ekkert annað en gróf mismunun og ótrúlegir fordómar. Það er komið á
    þriðja áratug síðan þessi lög voru sett. Lögin voru sett á mig á sínum
    tíma. Ég var í trúnaðarráði VR og bauð mig fram til stjórnar. Þeir fengu
    það út, ákveðnir aðilar, að með því að ég kæmist í stjórn VR, það munaði
    örfáum atkvæðum að ég kæmist inn, þá væru öryrkjar að yfirtaka félagið. VR
    er með VIRK — Starfsendurhæfingarsjóð og VIRK á að endurhæfa fólk. Er VIRK
    að endurhæfa fólk til allra starfa nema hjá VR? Ég má bjóða mig fram til
    þings. Ég má gera eiginlega allt og sækja um alls staðar en ég má ekki
    fara í stjórn VR. Það megum við öryrkjar ekki. Ég segi: Þetta virkar bara
    alls ekki og þessu á að breyta. Er ekki kominn tími til að bera virðingu
    fyrir öllum, elska náungann eins og hann er, því að þá loksins mun okkur
    farnast vel?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>