<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:32:57" skst="KGH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:35:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:32:57">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Að þessu sinni ætla ég að ræða umhverfismál. Ef velja
    ætti það jarðefnaeldsneyti sem veldur minnstum gróðurhúsaáhrifum er gas
    þar efst á blaði, síðan olía en brennsla á kolum veldur mestum
    gróðurhúsaáhrifum. Brennsla kola til orkuframleiðslu er t.d. 70% meira
    mengandi miðað við orkueiningu en brennsla gass, ef miðað er við
    meðalorkugjafa þeirra tegunda. Nú um stundir á brennsla kola sök á um 41%
    af útblæstri jarðefnaeldsneytis á þessum óæskilegu lofttegundum í heiminum
    og um 20% í Evrópu. Hvað er skynsamlegast að gera í slíkri stöðu, frú
    forseti, ef menn vilja raunverulega vera umhverfisvænir? Á meðan staðan er
    þessi er auðvitað eðlilegast að auka vinnslu á olíu og gasi til að leitast
    við að minnka brennslu á kolum. Og hvað eru menn að gera? Hvað eru menn
    svo að gera? Nú berast þær furðufréttir að Evrópusambandið hyggist halda
    fast við kröfur sínar um bann við nýrri olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum
    og mun það vera liður í endurskoðun á stefnu sambandsins í málefnum
    norðurslóða. Þessi afstaða Evrópusambandsins mun óbeint valda örðugleikum
    við olíuleit og vinnslu á nýjum orkulindum og það jafnvel þó að það sé
    utan seilingar sambandsins. Þessi tiltekna afstaða er okkur Íslendingum þó
    ekki með öllu ókunn því síðasta ríkisstjórn lagði ítrekað fram frumvarp um
    bann við olíuleit í íslenskri lögsögu, sem dagaði sem betur fer
    uppi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Þessi afstaða, að koma í veg fyrir að minna mengandi
    orkugjafar geti leyst hina meira mengandi af hólmi, er í raun fáránleg og
    minnir mig á að vísu sem margir kannast við og er hvatning til að láta
    ekki aðgerðaleysið taka yfir og bera sig eftir björginni:</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:vísa>
        <ns:erindi><ns:lína>Lati-Geir á lækjarbakka,</ns:lína> <ns:lína>lá þar til hann dó.</ns:lína>
        <ns:lína>Vildi ekki vatnið smakka,</ns:lína> <ns:lína>var hann þyrstur þó.</ns:lína></ns:erindi>
      </ns:vísa></ns:mgr>

    <ns:mgr>Sjálfsagt er að girða ekki fyrir möguleika Íslendinga á að nýta
    auðlindir okkar og leitast við að brenna fremur eldsneyti sem mengar minna
    <ns:bjalla/> og í þeim efnum hefur Miðflokkurinn lagt fram tillögu um að
    hafnar verði að nýju markvissar rannsóknir á olíu- og gaslindum á
    landgrunni Íslands.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>