<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:35:32" skst="JúlÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:37:26 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:35:32">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég stend hér í fyrsta sinn í þessum ræðustól.
    Það er mér mikill heiður að standa á sama stað og þeir fjölmörgu þingmenn
    sem hafa tekið þátt í því verkefni að byggja hér upp eitt fremsta samfélag
    veraldar. Ég tilheyri kynslóð sem hefur erft afrakstur þessarar vinnu;
    landið okkar, frelsi og velmegun. En ekkert frjálst velmegunarsamfélag er
    svo burðugt að ekki sé hægt að glutra því frá sér með vondum hugmyndum og
    lélegri verkstjórn. Þau gæði sem við erfðum eru ekki sjálfgefin. Sívaxandi
    ríki, aukin skattheimta til að fjármagna það og óþrjótandi freisting
    ráðamanna til að skerða frelsi einstaklingsins, rétt hans til að járna út
    eigin braut, getur á mjög skömmum tíma grafið undan allri þeirri góðu
    vinnu sem Íslendingar hafa unnið. Okkar góða samfélag krefst þess að við
    syndum stöðugt á móti straumnum, gegn eðli stjórnmálanna. Við þurfum ekki
    að þola stöðnun, við þurfum ekki að reka sömu stjórnmálin og við höfum
    alltaf gert. Við getum og við eigum að krefjast nýrra og stórhuga hugmynda
    sem auka hlut einstaklingsins, hins almenna Íslendings, á kostnað
    ríkisins. Með þeim orðum er ég ekki að mismæla mig. En það krefst þess að
    við stingum okkur til sunds á hverjum einasta degi og syndum á móti
    straumnum því íslenska verkefninu er aldrei lokið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>