<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:37:36" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:39:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:37:36">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ríkisstjórnin talar gjarnan um gagnsæi þegar kemur að
    sjávarútveginum og atvinnulífinu. En hvernig birtist það gagnsæi í þeirra
    eigin verkum? Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að ein skattahækkun eigi að
    skila 3 milljörðum, önnur 4 o.s.frv., en við fáum ekki að sjá hvaða
    forsendur liggja að baki þessum tölum. Hvernig er tekið tillit til þess að
    fólk og fyrirtæki breyta hegðun sinni þegar skattar hækka, eða er kannski
    ekkert tekið tillit til þess? Í skriflegu svari frá fjármála- og
    efnahagsráðherra til mín um hvernig skattar þessa árs skiluðu sér miðað
    við áætlun kemur fram í stuttu máli að það sé ekki hægt að veita mér þær
    upplýsingar. Hugsum okkur fyrirtæki þar sem stjórnendur kynna fyrir stjórn
    fjárhagsáætlun næsta árs. Þar er gert ráð fyrir mikilli tekjuaukningu og
    árið endar í plús en svo er sagt: Við getum samt ekki sýnt ykkur hvernig
    við áætlum þessar auknu tekjur eða hvaða forsendur liggja að baki þeim.
    Engin stjórn myndi samþykkja slíkt og Alþingi á ekki heldur að gera
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú ræðum við skattahækkanir næsta árs án þess að fá að sjá skýrt
    hvernig hækkanir þessa árs eru að skila sér. Er það boðlegt? Ef vinnulag
    ríkisins er með þessum hætti þarf að breyta því. Í Bretlandi eru birt
    mánaðarleg viðmið fyrir ríkistekjur og fylgst opinberlega með frávikum.
    Við hljótum að geta gert slíkt hið sama. Það virðist alltaf ekkert mál að
    setja meiri kvaðir á atvinnulífið en svo er önnur saga þegar kemur að
    ríkinu sjálfu. Betri opin mælaborð ríkisfjármála ætti að vera
    lágmarkskrafa og sérstaklega hjá ríkisstjórn sem talar fyrir auknu
    gagnsæi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>