<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:39:53" skst="IAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:41:45 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:39:53">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hver hefur ekki rifið upp Monopoly á spilakvöldi?
    Allir reyna að kaupa Kringluna og Smáralindina en guð forði manni frá
    fangelsinu. Ég vildi alltaf vera skórinn en bróðir minn vildi vera
    bíllinn. Teiknum upp smá mynd: Kalli í Monopoly-landi ákveður að ferðast
    til Matador-lands og skoða náttúruna og fara í baðlónin sem landið er
    frægt fyrir. Kalli tekur auðvitað Monopoly-peninga með sér til að eyða.
    Jóna á Suðurlandi í Matador-landi er búin að leggja allt undir og byggja
    upp baðlón og búið er að bóka hópinn sem Kalli er í ofan í lónið. Jóna er
    búin að verðleggja aðgangsmiða með það í huga að ferðaþjónustan sé í neðra
    virðisaukaskattsþrepi, því það er jú borgað að mestu með fjármagni sem
    kemur frá útlöndum og gerir þessa grein að útflutningsgrein. Henni fannst
    frábært að geta verðlagt miðann aðeins ódýrara út af þessu og þá erum við
    með samkeppnisforskot á önnur lönd. Svo kemur skellurinn. Stjórnvöld í
    Matador-landi ákveða að skila hallalausum fjárlögum og taka baðlónin út
    fyrir sviga og færa þau upp um þrep, um heil 14%. Jóna klórar sér í
    hausnum yfir þessu. Hún er búin að byggja upp og bóka ofan í lónið marga
    hópa frá Monopoly-landi og búin að gera verðskrá fyrir árið. Hún verður
    einfaldlega að taka skellinn á sig. Ekki nóg með að þetta hafi verið
    hækkað heldur er byrjað að rukka fyrir aðgang að nokkrum af náttúruperlum
    Matador-lands. Hún byrjaði að sjá afbókanir og velti fyrir sér hvort lónið
    myndi einfaldlega lifa þetta af. Henni fannst fyrirsjáanleikinn afar góður
    þegar hún byrjaði að byggja upp lónið. Núna er staðan allt önnur. Kalli
    mætir til Matador-lands og sér að það er allt frekar dýrt og hugsar: Hefði
    ég kannski átt að bóka ferð til Olsen Olsen-lands?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>