<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:41:54" skst="IngD" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:44:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:41:54">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Nú í byrjun september voru birt í samráðsgátt
    stjórnvalda áform um breytingar á ýmsum lögum um skatta og gjöld
    (innheimta, tollar o.fl.), þar á meðal breytingu sem varðar tollflokkun
    rifins mozzarella-osts með viðbættum jurtaolíum sem notaður er við
    pítsugerð. Fyrirhuguð breyting beinist að vöruflokki sem hefur sætt
    ítarlegri meðferð hjá íslenskum tollyfirvöldum og öllum stigum dómstóla og
    hefur verulega þýðingu fyrir íslenska mjólkurframleiðslu eins og kunnugt
    er. Þá vekur það sérstaka athygli að samkvæmt áformaskjalinu er markmið
    áformaðs frumvarps m.a. að loka glufum, fækka undanþágum í skattkerfinu og
    auka skilvirkni í framkvæmd. Þetta eru ekkert annað en öfugmæli, frú
    forseti, því að þessi fyrirhugaða breyting á tollflokkum myndi fela í sér
    hið gagnstæða þar sem hún myndi skapa sérstaka undanþágu fyrir afmarkaðan
    vöruflokk sem hingað til hefur notið sömu tollmeðferðar og aðrar
    sambærilegar mjólkurafurðir og frekari glufur opnaðar. Þessi áform
    fjármálaráðherra Viðreisnar munu því óhjákvæmilega hafa mikil áhrif á
    íslenska mjólkurframleiðslu og afkomu kúabúa. En ég get upplýst Viðreisn
    um, sé henni ekki kunnugt um það, að mjólkurframleiðsla á sér stað á
    kúabúum á landsbyggðinni þar sem verðmætasköpun á sér stað og
    lífsviðurværi fjölda fjölskyldna í landinu, hún skiptir gríðarlegu máli.
    Það læðist að manni sá grunur að fyrirhuguð breyting muni fyrst og fremst
    þjóna sérhagsmunum fámenns hóps aðila. Nái breytingin fram að ganga yrðu
    sérhagsmunir örfárra innflytjenda matvæla teknir fram yfir almannahagsmuni
    sem felast m.a. í fæðuöryggi, innlendri verðmætasköpun, byggðafestu og
    framleiðslugetu landsins, auk þess sem þarna yrði skapað afar slæmt
    fordæmi. Hver er þá tilgangurinn? Það er von að maður velti því fyrir sér.
    <ns:bjalla/> Er tilgangurinn að herða enn frekar að landbúnaðarframleiðslu
    í landinu? Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar og þjónkun við tiltekna
    innflytjendur matvæla? Ég get upplýst þingheim um það að muni þetta
    frumvarp líta dagsins ljós, sem ég vona að það geri ekki, þá mun
    Miðflokkurinn taka til varna fyrir landbúnaðinn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>