<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:44:31" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:46:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:44:31">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að ræða hér í dag um hallalausu
    fjárlögin sem voru lögð fram núna fyrir skemmstu og hvernig þau birtast
    börnum og barnafjölskyldum. Ég er þriggja barna móðir og jafnframt amma,
    hvort sem þið trúið því eða ekki, en málefni barna standa mér mjög nærri
    og jafnframt líka flokknum mínum, Viðreisn, sem hefur alltaf sett málefni
    barna mjög ofarlega.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að varpa ljósi á helstu áherslur sem um ræðir í
    fjárlögunum. Við erum að stytta bið barnanna okkar eftir nauðsynlegri
    þjónustu. Við erum að setja 350 millj. kr. í að stytta biðlista eftir
    þjónustu við börn. Við erum að setja fjármagn til fjölskylduteymis
    Geðheilsumiðstöðvar barna. Við erum að grípa börnin okkar með fjölþættan
    vanda. Við erum að setja 800 millj. kr. í sérhæfða þjónustu fyrir börn sem
    eru vistuð utan heimilis eða börn með fjölþættan vanda. Við höldum áfram
    að styðja börnin okkar sem þurfa stuðning. Við erum að setja 1 milljarð
    til Barna- og fjölskyldustofu og 400 millj. kr. til barna í viðkvæmri
    stöðu. Við erum að passa betur upp á börnin okkar af erlendum uppruna og
    við erum að setja aukið fjármagn til að styðja börnin í skólakerfinu, um
    400 millj. kr. Við erum loksins að setja fjármagn í að semja nýtt námsefni
    fyrir grunnskóla. Við erum að setja 380 millj. kr. aukalega í
    námsgagnagerð og við erum að leggja áherslu á læsi, lestur og STEM-greinar
    í takt við atvinnustefnu stjórnvalda. Við erum að setja 8,8 milljarða í
    mál sem snúa að börnum og barnafjölskyldum; 8,8 milljarða í innspýtingu í
    málefni barna og við erum samt að spara til að hætta að reka ríkið á
    yfirdrætti.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>