<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:46:30" skst="ÞSv" tegflm="F" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:46:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:46:30">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti hefur orðið vör við það í máli þingmanna á undanförnum
    dögum að ekki er gerður greinarmunur á frumvörpum og lögum. Þetta er
    mikilvægur greinarmunur og hann er sá að á Alþingi eru frumvörp lögð fram
    og kallast frumvörp þangað til þau eru afgreidd og samþykkt sem lög. Þetta
    hefur komið fram í máli margra, bæði ráðherra og þingmanna, og við þurfum
    að gera þennan greinarmun af því að það er grundvallarmunur á frumvarpi og
    afgreiddum lögum frá Alþingi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>