<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:49:09" skst="ÁLÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:51:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:49:09">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Margir hafa lýst yfir miklum áhyggjum af
    bönkunum undanfarið og hvernig í ósköpunum þeir eigi að geta staðið undir
    smávægilegri hækkun á svokölluðum bankaskatti. Í tíð fyrri ríkisstjórnar
    árið 2020 var bankaskatturinn lækkaður úr 0,38% í 0,15% sem var 61%
    lækkun. Samkvæmt skýrslu sem þáverandi menningar- og viðskiptaráðherra lét
    gera árið 2023 kom skýrt fram að lækkunin skilaði sér alls ekki í betri
    kjörum til almennings. Skýrslan nær yfir árin 2018–2022 og leiddi m.a. í
    ljós að vaxtamunur hélst svo til óbreyttur á tímabilinu og lækkaði aðeins
    um 0,1 prósentustig, að vaxtamunur íslensku bankanna var um 69% hærri en
    hjá öðrum bönkum á Norðurlöndunum, að rekstrarkostnaður bankanna lækkaði
    sem hlutfall af tekjum um heil 12 prósentustig auk þess sem
    rekstrarkostnaður þeirra sem hlutfall af heildareignum lækkaði líka úr
    2,2% í 1,6%, að kostnaðarhlutföll íslensku bankanna voru með þeim lægstu
    meðal banka á Norðurlöndunum, að arðsemi undirliggjandi rekstrar árið 2022
    hafi ekki verið meiri frá árinu 2008 og að ávinningur eiganda af
    rekstrinum jókst um heil 66%.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ætli staðan sé ekki svipuð í dag? Ef bara er litið til síðustu
    tveggja ára þá högnuðust bankarnir um 88 milljarða árið 2024 og 94
    milljarða árið 2025. Bara á þessum tveimur árum var samanlagður hagnaður
    bankanna heilir 182 milljarðar, þ.e. um 450.000 kr. á hvern einstakling
    eða nær 2 milljónir á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Með hvaða rökum
    ættu þeir eiginlega að réttlæta að velta 0,25% af bankaskatti yfir á
    neytendur? Það væri algjört siðferðilegt gjaldþrot að mínu mati. Það er
    engin ástæða til að vorkenna bönkunum. Ef eitthvað myndi ég vilja hækka
    bankaskattinn enn meira.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>