<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:51:26" skst="ÁBH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:53:48 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:51:26">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Í lok ágúst lágu fyrir tölur sem bentu til
    a.m.k. 35.000 umframdauðsfalla í Evrópu í hitabylgju sumarsins. Sú tala
    náði aðeins til um helmings álfunnar og ágúst var þá ekki að fullu kominn
    inn í gögnin. Við vitum að loftslagsbreytingar af mannavöldum auka tíðni
    og ákefð ýmissa veðuröfga, þar á meðal hitabylgna. Horfum aðeins á þessa
    tölu, 35.000 umframdauðsföll, 35.000 líf. Fyrir 25 árum breyttist
    heimurinn þegar 2.977 manns létu lífið í hryðjuverkaárásunum 11.
    september. Við minnumst þess atburðar enn enda hafði hann áhrif á okkur
    öll og breytti því hvernig heimsbyggðin hugsaði um öryggi og ógnir.
    Loftslagsbreytingar hafa líka áhrif á okkur öll. Þær kosta mannslíf, þær
    ógna náttúru, samfélögum og lífsviðurværi fólks. En viðbrögðin eru
    einhvern veginn allt önnur. Kannski vegna þess að ógnin kemur ekki fram á
    einum morgni, hún birtist í hitabylgju hér og flóði þar, uppskerubresti
    eða skógareldi annars staðar, og kannski líka vegna þess að gríðarlegir
    fjárhagslegir hagsmunir eru bundnir við að breytingarnar gerist hægar en
    vísindin kalla á. En við verðum að fasa út notkun
    jarðefnaeldsneytis.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í morgun voru kynntar nýjar tölur um losun Íslands. Góðu
    fréttirnar eru að heildarlosun dróst saman um 3,9% á milli ára en slæmu
    fréttirnar eru að við erum enn langt frá markmiðum okkar. Með núverandi
    aðgerðum stefnir Ísland í aðeins 21% samdrátt í samfélagslosun árið 2030
    en markmiðið er 41%. Við þurfum að gera meira og hraðar. Við erum að hraða
    orkuskiptum, byggja upp hleðsluinnviði og hefja endurheimt hundruð hektara
    votlendis. Í grunninn snýst þetta um að afstýra vá en fátt er svo með öllu
    illt að ei boði gott. Þegar við skiptum út innfluttu jarðefnaeldsneyti
    fyrir íslenska endurnýjanlega orku drögum við ekki bara úr losun, við
    styrkjum orkufullveldi okkar og efnahagslegt viðnámsþol. Þegar við
    endurheimtum votlendi og önnur vistkerfi bindum við kolefni <ns:bjalla/>
    en verndum um leið náttúruna og líffræðilega fjölbreytni og þegar við
    styðjum loftslagsvænni landbúnað og græna nýsköpun getum við skapað ný
    tækifæri og styrkt byggðir um allt land. Við vitum hvert við þurfum að
    fara. Nú þurfum við einfaldlega að komast þangað miklu, miklu hraðar.
    <ns:frammíkall>Heyr, heyr.</ns:frammíkall></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>