<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:53:59" skst="RagnaS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:56:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:53:59">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Tölum aðeins um fæðingarorlofsmál. Við sem
    samfélag eigum að vera þakklát fyrir að ungt fólk vilji eignast börn
    snemma á starfsævinni þegar fólk er kannski enn að koma sér fyrir, er enn
    á leigumarkaði eða nýlega komið inn í eigið húsnæði. En við vitum að það
    er ekki alltaf auðvelt. Ég er þakklát fyrir að búa í samfélagi þar sem
    stutt er við ungar fjölskyldur. Hér á landi er tryggður réttur til
    fæðingarorlofs í 12 mánuði. Það er vel. Í því landi sem ég ólst að stórum
    hluta upp í, Bandaríkjunum, telst nokkuð vel sloppið ef móðir nær fjórum
    mánuðum með barni sínu eftir fæðingu. Feður taka orlof í mýflugumynd,
    kannski í örfáar vikur, ef eitthvað. Þrátt fyrir að okkar kerfi sé um
    margt gott þarf að bæta það áfram. Það hefur ríkisstjórn Kristrúnar
    Frostadóttur gert með hækkun á lágmarksgreiðslum, hækkun á fæðingarstyrk
    námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar, lengra fæðingarorlofi fyrir
    fjölburaforeldra og mæður sem veikjast á meðgöngu og einnig er búið að
    tryggja að hækkun hámarksgreiðslna í fæðingarorlofi nái til allra foreldra
    óháð fæðingardegi barns. En betur má ef duga skal. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Hér á landi erum við með mjög sérstakar reglur þegar kemur að
    viðmiðunartímabili fæðingarorlofs. Mjög langur tími, eða um eitt og hálft
    ár, líður frá því tímabili sem Fæðingarorlofssjóður horfir á þegar hann
    ákveður hvaða tekjur eigi að vera til grundvallar úr sjóðnum þegar fólk
    eignast loksins barn eða tekur orlof. Frá því að barn kemur í heiminn geta
    liðið margir mánuðir, jafnvel ár, þangað til hitt foreldrið tekur eða
    fullnýtir orlofið sitt. Þetta kemur niður á ungu fólki, fólki sem er í
    námi og eignast svo barn, fólki sem ákveður að eignast barn snemma á
    starfsævinni og líka foreldrum sem eignast börn með stuttu millibili. Þess
    vegna hef ég lagt fram nú í annað sinn þingsályktunartillögu þess efnis að
    viðmiðunartímabili fæðingarorlofsgreiðslna verði breytt svo það
    endurspegli betur rauntekjur þeirra foreldra sem ráðast í það verkefni að
    eignast fjölskyldu. Ég vona að sú tillaga fái góðar undirtektir í
    þingsal.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>