<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:56:24" skst="EÁs" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 13:58:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:56:24">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Í þessari viku kemur sveitarstjórnarfólk alls staðar
    að af landinu saman á landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga á
    Akureyri. Þetta er mikilvægt þing. Þar er ekki bara verið að ræða verkefni
    dagsins í dag heldur líka að móta áherslur sveitarfélaganna til næstu ára
    og ræða framtíð sveitarstjórnarstigsins til lengri tíma. Sú umræða skiptir
    okkur hér á Alþingi miklu máli. Sveitarfélög standa fólki næst og bera
    ábyrgð á stórum hluta þeirrar grunnþjónustu sem við treystum á alla daga.
    Þegar við ræðum um byggðastefnu snýst hún einmitt að stórum hluta um
    þetta: Getur fólk óháð búsetu treyst því að hafa aðgang að góðri
    grunnþjónustu? Í Norðausturkjördæmi þekkjum við vel hversu miklu máli
    samgöngur skipta í því sambandi. Góðar og öruggar samgöngur tengja saman
    byggðir, atvinnusvæði og þjónustu. Þær ráða miklu um aðgengi fólks að
    menntun og heilbrigðisþjónustu og möguleika fólks til að búa og starfa þar
    sem það kýs. Við þurfum því heildarsýn fyrir landsbyggðina. Þar þurfa ríki
    og sveitarfélög að vinna saman. Verkaskipting þarf að vera skýr,
    fjármögnun verkefna að fylgja ábyrgðinni og samtalið að vera
    raunverulegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Landsþingið á Akureyri er mikilvægur vettvangur fyrir
    þetta samtal. Okkar verkefni á Alþingi er síðan að hlusta á það sem
    sveitarstjórnarfólkið hefur fram að færa, taka svo samtalið og vinna saman
    að raunhæfum og sanngjörnum leiðum því að öflug sveitarfélög og góð
    grunnþjónusta um allt land eru grunnur að öflugu samfélagi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>