<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T13:58:27" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:00:46 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T13:58:27">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Fyrr á þessu ári voru samþykktar hér á Alþingi
    breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Þar á meðal var breyting á 33. gr.
    laganna sem fólst í því að ríkið hætti greiðsluþátttöku vegna veikinda og
    slysa utan EES. Þessi breyting var útskýrð og rökstudd með þeim hætti að
    fólk gæti einfaldlega leitað til tryggingafélaga og keypt sér tryggingar í
    tengslum við slík ferðalög. Nú liggur fyrir að málið er kannski ekki alveg
    jafn einfalt og lagt var upp með þar sem tryggingafélögin tryggja almennt
    ekki fólk með undirliggjandi sjúkdóma og hafna slíkum umsóknum. Sá hópur
    stendur því frammi fyrir því að ef upp kemur alvarlegt heilsuatvik á
    ferðalagi utan EES-svæðisins, sem krefst þess t.d. að viðkomandi leggist
    inn á spítala, er engin trygging til staðar til að dekka þann kostnað sem
    af hlýst. Að óbreyttu hefði sá kostnaður lent á sjúklingunum sjálfum. Til
    að reyna að bjarga þessu máli var því sett reglugerð nú í sumar, reglugerð
    nr. 760/2026, þar sem kveðið er á um að ríkið stígi inn og reyni að mæta
    þessum hópi en þó þannig að skilið er eftir tiltekið hlutfall fyrir
    sjúklinginn sjálfan til að bera. Í 3. gr. reglugerðarinnar segir þannig að
    af kostnaði undir 75.000 kr. greiðir ríkið 50%, af kostnaði yfir 75.000
    greiðir ríkið 75% og af kostnaði yfir tíu milljónum greiðist 90%. <!--https:	//www.reglugerd.is/reglugerdir/allar/nr/0760-2026-->
    Í tilfelli lífeyrisþega er hlutfallið hærra. Gísli Jónasson, fyrrverandi
    prófastur og gjaldkeri MND-félagsins á Íslandi, hefur vakið athygli á
    þessu, bæði með því að senda okkur þingmönnum erindi en líka í fjölmiðlum.
    Samkvæmt útreikningum Gísla getur eigin áhætta í tilfelli langveiks
    lífeyrisþega orðið allt að 1.030.000 kr. og í tilfelli aðila sem ekki er
    lífeyrisþegi getur eigin áhætta orðið allt að 3–4 milljónir ef illa fer. Í
    þessu felst að fólk með undirliggjandi sjúkdóma stendur frammi fyrir
    þeirri áhættu að ef illa fer á ferðalagi, ef það þarf t.d. að fara í stóra
    bráðaaðgerð á sjúklingi, getur kostnaðurinn hlaupið á einhverjum
    milljónum. Við mig hafði samband móðir á dögunum sem á langveikt barn og
    hún sagði að það væri skrýtin tilfinning að ákvörðun um ferðalög, t.d. til
    Bandaríkjanna, væri orðin að einhvers konar risastóru fjárhagslegu
    áhættuspili fyrir fjölskylduna. <ns:bjalla/></ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég hef sett fram skriflega fyrirspurn til
    hæstv. heilbrigðisráðherra af þessum sökum og hvet hana til að skoða þetta
    mál vel og vandlega.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>