<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:00:54" skst="SVS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:03:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:00:54">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Það er óhætt að segja að landsbyggðin eigi
    undir högg að sækja. Það er svo sem ekkert nýtt að landsbyggðin þurfi að
    berjast fyrir tilverurétti sínum, berjast fyrir því að halda fólki og
    berjast fyrir því að fá fyrirtæki til að setjast að og byggja upp
    starfsstöðvar sínar utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta staðfestist í tölum
    um íbúafjölda á landsbyggðinni í samanburði við íbúafjölda á
    höfuðborgarsvæðinu. Byggðastefna er fallegt orð sem notað er á tyllidögum
    og oft hér í þinginu. Hvað höfum við oft heyrt það í þessum sal að það
    þurfi að efla landsbyggðina? Allt þetta sögðu ríkisstjórnarflokkarnir
    fyrir síðustu kosningar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hverjar eru efndirnar, virðulegur forseti? Loforð gefin, loforð
    efnd. Í umræðum um veiðigjöld, vörugjöld og kílómetragjald var lofað
    rúmlega 18 milljörðum í vegabætur á landsbyggðinni. Niðurstaðan nú í
    fjárlagafrumvarpinu er 3–4 milljarða kr. niðurskurður í samgöngumálum. Það
    er búið að taka sýslumanninn, heilbrigðiseftirlitið, skerða starfsemi
    Vinnumálastofnunar á landsbyggðinni og gerð var atlaga að því að segja upp
    skólameisturum framhaldsskólanna, sem betur fer var hún stöðvuð. Boðað
    hefur verið frumvarp til þess að fækka lögreglustjórum og sameina embætti.
    Þá má nefna glórulausa hækkun vöruflutninga í formi 7,2 milljarða hækkunar
    á kílómetragjaldi. 4 milljarða hækkun í ár mun hækka kostnað á stóran
    trailer-bíl um 27% eða um tæpa 1 millj. kr. á ári. Þetta er kostnaður sem
    mun lenda á íbúum landsbyggðarinnar í hærra vöruverði og hærri
    flutningskostnaði fyrirtækja á landsbyggðinni. Allt þetta hefur verið
    gagnrýnt, m.a. af þingmönnum landsbyggðarkjördæmanna. <ns:bjalla/> Hvað er
    þá næst? Jú, fækka þingmönnum landsbyggðarinnar, fækka kjörnum fulltrúum
    landsbyggðarinnar á Alþingi Íslendinga, að öllum öðrum ólöstuðum, þeim
    þingmönnum <ns:bjalla/> sem hafa barist hvað harðast fyrir hagsmunum
    einmitt landsbyggðarinnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Nú er mál að linni. Ef það er markmið
    ríkisstjórnarinnar að gera Ísland að borgríki á suðvesturhorninu
    <ns:bjalla/> þá er ríkisstjórnin á réttri leið.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>