<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:03:38" skst="MRK" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:05:44 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:03:38">
    <ns:mál málsflokkur="B" málstegund="st" nr="48">
      <ns:málsheiti>Störf þingsins</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ríkisstjórnin ætlar að hætta að reka ríkið á
    yfirdrætti. Það þekkja það allir sem reka heimili að það getur verið gaman
    að spreða en reikningurinn kemur alltaf á endanum, annaðhvort til
    framtíðarsjálfsins eða jafnvel til barnanna ef maður gætir sín ekki. Það
    eru ekkert allir útgjaldaliðir heimilisins jafnmikilvægir, maður heldur
    áfram að greiða af lánunum, þótt þau lækki nú sjaldan, og gefa börnunum að
    borða. En maður minnkar að sjálfsögðu munað og geymir það sem bíða má.
    Ríkisstjórnin ætlar ekki að taka velferðina að láni frá
    framtíðarkynslóðum. Ríkisstjórnin ætlar að viðhalda mikilvægustu kerfunum
    okkar og gefa í þar sem innviðaskuld er mikil, rétt eins og maður kaupir
    ekki heitan pott þegar þakið lekur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Vegir víða um land hafa grotnað niður árum saman og
    viðhaldsþörfin hefur safnast upp. Þessu erum við að breyta. Í fjárlögum er
    gert ráð fyrir 17,6 milljörðum kr. í viðhald sem á að hækka upp í 20
    milljarða kr. á kjörtímabilinu. Til samanburðar gerði fyrri ríkisstjórn
    ráð fyrir aðeins um 13 milljörðum kr. í viðhald. Þarna munar um 7
    milljörðum. Kyrrstaða hefur ríkt í jarðgangagerð frá árinu 2020. Þessu
    erum við líka að breyta. Við ætlum að hefja framkvæmdir og að auki er
    verið að hefja hönnun á öðrum mikilvægum kostum. Þetta skiptir máli.
    Síðasta ríkisstjórn kom samþykktri samgönguáætlun ekki í gegnum þingið en
    þessu erum við að breyta. Við kláruðum málið og stofnuðum líka
    innviðafélag. Þannig sköpuðum við grundvöll fyrir stórsókn í mikilvægum
    samgönguframkvæmdum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Allt þetta gerum við á sama tíma og við skilum
    hallalausum fjárlögum. Við erum að fjárfesta í innviðum en hætta um leið
    að reka ríkissjóð á yfirdrætti, því að mesta kjarabót sem íslensk heimili
    geta fengið er lægri verðbólga og lægri vextir og þar ætlar ríkið, eins og
    skynsamlega rekið heimili, að leggja sitt af mörkum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>