<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-22T14:06:16" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:11:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:06:16">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="101">
      <ns:málsheiti>Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um
    breytingu á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021,
    sem fjallar um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika. Atvik telst alvarlegt
    ef það hefur eða hefði geta valdið notanda þjónustu varanlegu líkamlegu
    eða andlegu tjóni eða orðið viðkomandi að bana. Frumvarp þessa efnis var
    lagt fram á 157. löggjafarþingi sem 598. mál á þskj. 1027, en náði ekki
    fram að ganga. Það er nú lagt fram að nýju, efnislega óbreytt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Efni frumvarpsins er afmarkað en mikilvægt og lýtur að
    nauðsynlegum breytingum á gildandi lögum til að tryggja að rannsóknir á
    alvarlegum óvæntum atvikum í velferðarþjónustu nái tilgangi sínum.
    Markmiðið er að unnt sé að draga lærdóm af slíkum atvikum og koma í veg
    fyrir að þau endurtaki sig. Markmið frumvarpsins er að styrkja rannsóknir,
    tilkynningarskyldu og skráningu slíkra atvika í velferðarþjónustu með það
    fyrir augum að bæta öryggi, gæði og traust á þjónustunni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í framkvæmd gildandi laga hefur komið í ljós að ákveðnir annmarkar
    eru á rannsóknarheimildum Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.
    Stofnunin hefur víðtækar heimildir til þess að afla gagna þegar alvarlegt
    óvænt atvik er rannsakað, en þarf jafnframt að reiða sig á framburð
    stjórnenda og starfsfólks sem veita þjónustuna. Slíkur framburður er
    lykilatriði við rannsókn mála. Hins vegar er ekki tryggt að þær
    upplýsingar sem er aflað við slíkar stjórnsýslurannsóknir, þar á meðal
    framburður starfsfólks og stjórnenda þjónustuveitenda, verði ekki afhentar
    lögreglu komi fram krafa þess efnis. Afleiðingin er sú að rannsóknir á
    alvarlegum óvæntum atvikum hafa ekki náð markmiði sínu til fulls. Dæmi eru
    um að framvinda rannsókna hafi stöðvast þegar ekki var hægt að tryggja að
    framburðir yrðu ekki afhentir lögreglu. Slík staða hefur eðli máls
    samkvæmt neikvæð áhrif á framvindu rannsókna, enda eru upplýsingar
    stjórnenda og starfsfólks oft lykilforsenda þess að greina megi hvað fór
    úrskeiðis og koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig. Við þetta
    getum við ekki unað.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu er brugðist við þeirri
    stöðu sem hér hefur verið lýst. Lagt er til að gerðar verði sambærilegar
    breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála og þegar
    hafa verið innleiddar á sviði heilbrigðisþjónustu, með breytingum á lögum
    um landlækni og lýðheilsu. Í því felst meðal annars að skýrslur
    stofnunarinnar um rannsókn alvarlegra óvæntra atvika verði ekki notaðar
    sem sönnunargögn í sakamálum. Jafnframt verði ekki heimilt að nota
    upplýsingar sem starfsfólk eða aðrir veita stofnuninni sem sönnunargögn
    gegn þeim, né að afhenda gögn sem geyma framburð þeirra. Með þessu er
    skapað það traust sem þarf til að þau sem búa yfir upplýsingum geti tjáð
    sig af hreinskilni og að rannsóknir skili raunverulegum árangri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið felur jafnframt í sér að skylda stofnunarinnar til að
    benda lögreglu á meinta refsiverða háttsemi verði felld brott. Með því er
    dregin skýrari lína á milli stjórnsýslurannsókna annars vegar og
    sakamálarannsókna hins vegar og stuðlað að því að rannsóknir í þágu
    öryggis og umbóta nái fram að ganga.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mikilvægt er að árétta að frumvarpið breytir ekki
    grundvallarskyldum þjónustuveitenda. Skráningarskylda vegna óvæntra atvika
    stendur áfram óbreytt og tilkynningarskylda vegna alvarlegra atvika heldur
    einnig gildi sínu. Hins vegar er með frumvarpinu skerpt á því hvernig slík
    mál eru rannsökuð og hvernig niðurstöður þeirra eru nýttar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frumvarpið kveður einnig á um skýrari samskipti milli Gæða- og
    eftirlitsstofnunar velferðarmála og embættis landlæknis þegar atvik
    tengjast bæði félagslegri velferðarþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Slík
    samvinna er mikilvæg í ljósi þess að þjónusta við einstaklinga er oft
    samþætt og krefst samræmdra viðbragða. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Frumvarp þetta felur í sér afmarkaða en
    mikilvæga lagabreytingu sem miðar að því að efla gæði og öryggi í
    velferðarþjónustu. Með breytingunni er bætt úr annmörkum í gildandi
    löggjöf og skapaðar traustari og skilvirkari forsendur fyrir rannsóknir á
    alvarlegum atvikum. Slíkar rannsóknir eru mikilvægur þáttur í því að bæta
    öryggi notenda og styrkja starfsskilyrði fagfólks í velferðarþjónustu. Með
    þessu er stuðlað að því að lærdómur verði dreginn af alvarlegum atvikum og
    að komið verði í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég hef nú lokið máli mínu og legg til að
    frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv.
    velferðarnefndar.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>