<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-22T14:11:52" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="F" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:20:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:11:52">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um
    framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029. Tillagan er
    lögð fram í samræmi við 7. gr. laga um málefni innflytjenda þar sem kveðið
    er á um að ráðherra skuli leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar
    um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára í senn að
    fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Vinnumálastofnunar og
    innflytjendaráðs. Tillagan var fyrst lögð fram á 157. löggjafarþingi en
    náði ekki fram að ganga. Tillagan er því lögð fram að nýju í óbreyttri
    mynd.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Tillaga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum
    innflytjenda fyrir árin 2026–2029 byggir á ítarlegu stöðumati og greiningu
    á brýnustu aðgerðum til að ná fram þeim markmiðum sem lög um málefni
    innflytjenda kveða á um. Staða í málefnum innflytjenda var metin og birti
    grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks í nóvember 2023. Henni var
    svo fylgt eftir með hvítbók í maí 2024. Samhliða framkvæmdi Efnahags- og
    framfarastofnunin úttekt um innflytjendur á Íslandi sem birt var þann 4.
    september sama ár.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við mótun aðgerða í tillögunni sem hér er lögð fram var byggt á
    framangreindri vinnu auk annarra gagna, m.a. ríkulegu samtali við
    innflytjendur sjálfa um þarfir þeirra og tækifæri hér á landi. Í
    áætluninni er kveðið á um verkefni sem hafa það að markmiði að stuðla að
    samfélagi þar sem allir einstaklingar geti verið virkir þátttakendur, óháð
    þjóðerni og uppruna. Drög að tillögu til þingsályktunar voru birt í
    samráðsgátt stjórnvalda í febrúar 2026 og bárust alls tíu umsagnir um
    tillögurnar sem teknar voru til skoðunar við lokavinnslu
    tillögunnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þingsályktunartillaga um framkvæmdaáætlun í
    málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 byggir á fimm stoðum sem
    samtals fela í sér 24 aðgerðir. Fyrsta stoðin er íslenskunám og notkun
    tungumálsins í daglegu lífi. Lögð er áhersla á að færni í íslensku sé
    lykill að samfélaginu en ekki síður að samfélagið sé lykillinn að
    íslenskunni sjálfri. Þar er að finna aðgerðir sem snúa að námi, kennslu og
    notkun íslensku sem samskiptamáls. Aðgerðunum er ætlað að tryggja að
    aðgengilegt, sveigjanlegt og vandað íslenskunám sé í boði um land allt.
    Jafnframt er lögð áhersla á að sýndur sé skilningur gagnvart þeim sem eru
    að læra íslensku, að samfélagið styðji við nýja íslenska notendur og skapi
    þeim tækifæri til að nota tungumálið. Sem dæmi um aðgerðir má nefna aðgerð
    í kafla 1.1. um að íslenskunám verði gert fjölbreytt og markvisst fyrir
    alla. Aðgerðin felur í sér að stjórnvöld skýri hvaða kröfur innflytjendur
    þurfi að uppfylla til að ljúka námskeiðum. Jafnframt verður framsetning
    útskriftarskjala samræmd til að atvinnulífið fái skýra mynd af
    íslenskuhæfni þeirra sem lokið hafa námskeiðum. Innleidd verða stöðupróf í
    íslensku sem meta með áreiðanlegum hætti færnistig, líkt og gert er í
    öðrum löndum. Aðgengi að starfstengdri íslenskufærni verður aukið svo að
    fólk geti lært og æft íslenskt mál sem mest á vinnutíma.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í annarri stoðinni, um mat á námi og þátttöku á vinnumarkaði, er
    að finna aðgerðir sem miða að því að styrkja stöðu innflytjenda á
    íslenskum vinnumarkaði og nýta þekkingu þeirra og fyrri reynslu
    samfélaginu til heilla. Lögð er áhersla á mat á menntun og starfsreynslu
    til starfsréttinda hér á landi. Einnig er lögð áhersla á virkni og aukin
    tækifæri á vinnumarkaði, auk fræðslu um réttindi og skyldur þar að
    lútandi. Sem dæmi má nefna aðgerð 2.3., virkni og tækifæri á vinnumarkaði.
    Þar mun Vinnumálastofnun styðja sérstaklega við læsi og eflingu grunnfærni
    þeirra innflytjenda sem þess þurfa með samfélagslegri og starfstengdri
    fræðslu sem miðar að aukinni þátttöku á vinnumarkaði og verður m.a. boðið
    upp á fræðslu um réttindi, skyldur og vinnustaðamenningu á íslenskum
    vinnumarkaði.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í stoð um upplýsingaþjónustu, samfélagsfræðslu og þátttöku er að
    finna aðgerðir sem miða að því að efla upplýsingaþjónustu og
    samfélagsfræðslu fyrir innflytjendur. Jafnframt er lögð áhersla á fræðslu
    um menningarnæmi og þann samfélagslega ávinning sem felst í jafnri stöðu
    íbúa, óháð uppruna. Sem dæmi um aðgerðir má nefna aðgerð 3.4., þátttaka
    barna og ungmenna í íþrótta- og æskulýðsstarfi og öðru tómstundastarfi.
    Við ætlum að innleiða verkferla sem hafa gefið góða reynslu erlendis til
    að efla og auka þátttöku erlendra barna í skipulögðu íþrótta- og
    tómstundastarfi, enda er það lykilatriði í inngildingu að börn umgangist
    jafnaldra sína með reglubundnum hætti. Slíkt kemur jafnframt í veg fyrir
    félagslega einangrun og óæskilega hópamyndun.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fjórða stoðin fjallar um sérstaklega viðkvæma hópa. Þar er að
    finna aðgerðir með áherslu á félagslegt öryggi og velferð og stuðning við
    þá hópa innflytjenda sem standa höllum fæti. Sérstaklega er litið til þess
    að draga úr fátækt meðal innflytjenda. Þá er lögð áhersla á að stuðningur
    við flóttafólk stuðli að því að fólk nái rótfestu í nýju samfélagi og
    efldur verði sálrænn stuðningur og meðferð við áfallastreituröskun. Gott
    dæmi um aðgerðir fyrir viðkvæma hópa er samspil aðgerða sem snúa að
    geðheilbrigðismálum og sálrænum stuðningi. Þar munu mitt ráðuneyti og
    heilbrigðisráðuneytið snúa bökum saman í að vinna að bættu aðgengi að
    gagnreyndri meðferð við áfallastreituröskun og á sama tíma efla sálrænan
    stuðning við þá sem ekki eru svo illa staddir að hafa þróað með sér
    áfallastreituröskun en glíma engu að síður við erfiða reynslu í kjölfar
    áfalla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Fimmta og síðasta stoðin snýr að tölfræði og rannsóknum. Þar er að
    finna aðgerðir sem miða að því að efla söfnun, miðlun og birtingu hagtalna
    um innflytjendur. Jafnframt er lögð áhersla á miðlun þekkingar og
    hagnýtingu rannsókna á sviði innflytjendamála. Sem dæmi má nefna aðgerð um
    að bæta aðgengi að tölfræði um innflytjendur. Til stendur að skilgreina
    úrbótatækifæri og bæta opinber gagnasöfn og birtingu þeirra svo að gögnin
    verði tímanleg og samanburðarhæf. Þessi aðgerð svarar einum af helstu
    ráðleggingum OECD til íslenskra stjórnvalda og mun leggja traustan grunn
    að allri stefnumótun og eftirfylgni markmiða í málefnum
    innflytjenda.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir hröðum
    lýðfræðilegum breytingum þar sem hlutfall innflytjenda af
    heildaríbúafjölda hefur vaxið hraðar en í nokkru öðru aðildarríki OECD.
    Það hefur í för með sér bæði áskoranir og tækifæri á ólíkum sviðum og er
    markmið framkvæmdaáætlunarinnar, sem ég hef hér gert grein fyrir, að
    samhæfa aðgerðir í ólíkum málaflokkum og tryggja þannig sem bestan
    stuðning, jafnt við innflytjendur sjálfa sem þá innviði sem þarf til að
    efla inngildandi samfélag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að efla íslenskukennslu
    fyrir þau sem hingað flytja. Við vitum að tungumálið er lykillinn að
    inngildingu og höfum þess vegna lagt áherslu á íslensku í þessari
    aðgerðaáætlun. Ég vil hvetja samfélagið allt til að taka þátt í þessu
    sameiginlega verkefni, enda tekst það ekki nema allir leggi hönd á plóg.
    Ég tel aðgerðaáætlunina í senn vera metnaðarfulla og raunhæfa en rétt er
    að nefna að kostnaðurinn við þær aðgerðir sem ég hef hér kynnt rúmast
    innan fjárheimilda. Ég bind miklar vonir við að þingmenn sameinist um þær
    aðgerðir sem hér eru lagðar til og að málið fái góða og vandaða meðferð
    hjá þinginu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Að lokum legg ég til að þessari tillögu til þingsályktunar verði
    vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>