<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:20:37" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:21:42 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:20:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans umfjöllun um
    þessa aðgerðaáætlun sem ég hef nú ýmislegt um að segja, eins og ég mun
    koma inn á í minni ræðu. Ég vildi glöggva mig á einum punkti í
    aðgerðaáætluninni sjálfri af hálfu hæstv. ráðherra. Þar er talað um að
    bæta aðgengi að margvíslegum gögnum. Nú hefur í þessum þingsal t.d. verið
    rætt um mælaborð á sviði afbrota og glæpa, sem er náttúrlega bara einn
    angi þessarar umræðu. En það er athyglisvert að stjórnvöld fari af stað
    með yfirlýsingar um að bæta aðgengi að gögnum. Er hæstv. ráðherra kunnugt
    um áform um slíka gagnasöfnun inni í dómsmálaráðuneyti og er vísað til
    þess í þessari aðgerðaáætlun? Það er því miður bara ein mínúta sem ég hef
    hér en ég bíð svars frá hæstv. ráðherra og svo getum við vonandi haldið
    áfram.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>