<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:22:31" skst="SMás" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:23:28 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:22:31">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Okkur gefst nú bara ein mínúta í þessum stuttu
    andsvörum til að velta fyrir okkur ýmsum hliðum þessa máls. Þetta er
    auðvitað mjög víðtæk áætlun og margt sem maður gerir ákveðnar athugasemdir
    við, hvernig nálgunin er. Vonandi gefst færi á því að fara betur yfir það
    í ræðu hér á eftir. Meðal þess sem vakti athygli mína var það sjónarmið að
    innflytjendur yrðu hvattir til þátttöku í lýðræðislegum kosningum og
    fræddir um lýðræðislegt skipulag og stjórnarhætti hér á landi. Þetta er
    auðvitað mjög flókin spurning sem flest vestræn ríki standa frammi fyrir
    um þátttöku útlendinga í lýðræðislegum kosningum. Á einhverjum tímapunkti
    geta ýmsir hafa fengið ríkisborgararétt og í sveitarstjórnarkosningum eru
    menn farnir að fá kosningarrétt, að ég held, eftir fimm ára búsetu hér á
    Íslandi. Er það formlegt markmið íslenskra stjórnvalda, eins og hæstv.
    ráðherra skilur það, að innflytjendur taki í auknum mæli þátt í
    lýðræðislegum kosningum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>