<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-22T14:23:36" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:24:36 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:23:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari
    spurninguna. Það er skýrt markmið ríkisstjórnarinnar með þessari áætlun að
    setja aukinn kraft í inngildingu og hluti af inngildingu í íslensku
    samfélagi er bæði lýðræðisleg þátttaka og bara almenn þátttaka. Það er
    lykillinn að því að við náum að byggja hér upp samfélag. Samfélagið hefur
    auðvitað breyst mjög mikið síðustu árin. Árið 2015 var fyrsta og önnur
    kynslóð innflytjenda í kringum 30.000 en er um 85.000 í dag, tíu árum
    seinna. Við erum með gjörbreytt samfélag og samsetningu á samfélagi og
    þurfum auðvitað að bregðast við því. Ef við ætlum að standa okkur vel og
    halda áfram að byggja upp gott samfélag þá er hluti af inngildingu
    lýðræðisleg þátttaka sem og annað, bara þátttaka í íslensku
    samfélagi.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>