<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:24:47" skst="IAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:25:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:24:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka ráðherra fyrir framsöguna. Nokkrir hv.
    þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að
    stofnað verði umrætt mælaborð í málefnum innflytjenda. Dönsk stjórnvöld
    hafa til að mynda komið upp opinberu mælaborði sem mælir m.a.
    atvinnuþátttöku, menntun, dönskukunnáttu, opinbera framfærslu, glæpatíðni
    o.s.frv. Er þetta mælaborð gert með það í huga að meta árangur af aðlögun
    innflytjenda að dönsku samfélagi. Það væri mikið heillaskref ef þetta kæmi
    á Íslandi og almenningur hefði aðgang að því. Ég fæ t.d. ekki séð að
    einhver aðgerð sé tileinkuð þessu mælaborði í því máli sem liggur fyrir,
    framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029. Ætlar
    ráðherra að leggja áherslu á þetta eða hvernig tekur hann almennt í þessa
    hugmynd?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>