<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:26:39" skst="IAS" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:27:15 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:26:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil feta aðeins aðrar slóðir í mínu seinna
    andsvari en ég þakka ráðherra fyrir svarið samt sem áður. Við getum verið
    sammála um að það sé mikilvægt að innflytjendur læri íslensku til að
    aðlagast íslensku samfélagi og er það líklegast eitt það fyrsta sem
    innflytjendur ættu að gera. Margir innflytjendur búa úti á landi til að
    vinna, m.a. í ferðaþjónustu og fiskvinnslu og hvaðeina. Það sem ég er að
    velta fyrir mér er hvort búið sé að kortleggja það hvernig aðgengi að
    námskeiðum í íslensku sé nú þegar í dreifðari byggðum og þá hvernig þessi
    námskeið séu sótt o.s.frv.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>