<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:28:33" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:29:35 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:28:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir
    framsöguna hér. Mig langar að víkja að máli sem snýr að því að það er mjög
    mikið af flóttafólki uppi á Bifröst enn þá. Á meðan við vorum að taka við
    flóttafólki frá Úkraínu var ákveðið að færa stóran hluta af þeim hópi upp
    á Bifröst og voru yfir 180 flóttamenn, ef ég man rétt, þegar mest var.
    Síðan hefur komið í ljós að sveitarfélagið hefur í raun eiginlega verið í
    þessari glímu eitt og sér. Ég verð að segja það, og það hef ég kannski
    ekki beinlínis upp á núverandi ráðherra að klaga, að það hefur verið
    ótrúlegt sinnuleysi gagnvart sveitarstjórninni í Borgarbyggð gagnvart
    þessu máli. Mig langar að forvitnast hjá hæstv. ráðherra hvort hann sjái
    fyrir sér að það sé tekið á svona málum í þessari áætlun sem hér liggur
    fyrir.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>