<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:30:57" skst="ÓA" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:32:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:30:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð svör og ánægjulegt
    að heyra að mögulega séu hlutirnir að hreyfast hér eitthvað, alla vega
    meira en áður var, því það skiptir máli. Það sem kannski er líka alvarlegt
    í þessu máli er að eitt er auðvitað að sveitarfélagið skuli skilið eftir
    með allan þennan hóp af fólki og í rauninni sett gríðarlegt fjárhagslegt
    álag á sveitarfélagið en hitt er líka hvernig þessu fólki mun reiða af því
    það skiptir auðvitað líka máli. Þarna eru börn og gamalmenni sem eru þá
    ekki kannski að njóta þeirrar þjónustu sem eðlilegt væri að væri fyrir
    hendi þannig að ég vil bara skora á ráðherrann og hvetja hann til góðra
    verka í þessum efnum og að finna lausn á þessu. Ég ætla bara að minna
    ráðherrann á eitt: Það er auðvitað ekki ásættanlegt, af því að ríkið er
    ekki að bera neitt fjárhagslegt tjón af málinu á meðan það er hjá
    sveitarfélögunum, að það verði á einhvern hátt til þess að letja
    ráðuneytið í því að finna niðurstöðu í málinu. Það skiptir gríðarlega
    miklu máli að ráðuneytið taki þetta alvarlega.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>