<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:33:07" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:34:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:33:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans yfirferð.
    Þetta er svo sannarlega mikilvægt og spennandi mál til að takast á við
    áfram hér í vetur. Það er ánægjulegt að íslenskunám sé efst á blaði, að
    það verði gert fjölbreytt og markvisst fyrir alla. Það er náttúrlega það
    brýnasta í þessu. Ég tók eftir því að íslenska sem samskiptamál er líka
    ofarlega á blaði. Mig langar til að fá aðeins fram frá hæstv. ráðherra, af
    því að nú eru margir hlutir að breytast mjög hratt og hafa breyst mjög
    hratt á undanförnum áratug varðandi fjölda fólks í landinu og í tilteknum
    sveitarfélögum og skólum og þar fram eftir götunum. Margir hafa lagt
    mikinn metnað í það, sveitarfélög og aðrir, að þýða á ensku, pólsku,
    jafnvel arabísku, alls kyns fréttir sem birtast á heimasíðum
    sveitarfélaga. Telur hæstv. ráðherra að við höfum kannski verið á rangri
    leið þar, að við ættum að leggja enn meiri áherslu á að íslenska er
    samskiptamálið?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>