<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="fél.- og húsnrh." frhr="0" id="r2026-09-22T14:34:33" skst="RÞI" tegflm="R" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:35:43 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:34:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég
    tel svo sannarlega að þetta sé mikilvæg leið. Að ná til fólks er að
    nálgast það á tungumáli þess, það er fyrsta snertingin, og síðan auðvitað
    að halda áfram með öll þau úrræði sem við höfum varðandi inngildingu.
    Þetta er auðvitað mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. Sum sveitarfélög
    eru öflugri í þessu en önnur. En ég held að við höfum ekki gert mistök við
    að reyna að ná til fólks með því að vera með kynningarefni á öðrum
    tungumálum en íslensku. Það skiptir auðvitað máli að sveitarfélögin hafa
    mörg hver verið að gera mjög góða hluti sem má hrósa, það má hrósa því sem
    vel er gert. En það sem við mættum t.d. gera betur, og kemur fram í
    aðgerðaáætluninni, er að fá vinnumarkaðinn meira með okkur. Þetta hefur
    mikið verið rætt á vettvangi kjarasamninga og að fólk geti t.d. lært
    íslensku á vinnutíma.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>