<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-22T14:35:48" skst="RGuðb" tegflm="Þ" tegr="A" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-22 14:37:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="10" lgþ="158" tími="2026-09-22T14:35:48">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="a" nr="102">
      <ns:málsheiti>framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin
      2026--2029</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Eins og ég
    lagði áherslu á þá höfum við öll einhvern veginn verið að hamast í þessum
    málum til að reyna að gera sem best og taka sem best á móti fólki sem hér
    ætlar að vera. Inngilding eða aðlögun? Við getum líka tekist á um hvort er
    réttara orð og hvað felst í hvoru fyrir sig.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú tengjast skólamálin þessu, við erum að tala um íslenskunám og
    við erum að tala um hvernig álagið er í skólastofunum og við höfum
    áhyggjur af niðurstöðum í PISA og þar fram eftir götunum, af öllum börnum,
    íslenskum sem erlendum, sem hér eru. Mig langar til að bera eitt undir
    hæstv. ráðherra því að það ber allt að sama brunni og þetta er allt sami
    málaflokkurinn. Fyndist hæstv. ráðherra koma til greina að setja eitthvert
    hámarkshlutfall erlendra innflytjendabarna, erlendra barna, inn í bekkina
    eins og hefur tíðkast sums staðar? Nú er Meloni, forsætisráðherra Ítalíu,
    að fara að herða þetta, gera strangari kröfur þar um. Fyndist hæstv.
    ráðherra þetta koma til greina, að það yrði lögboðið hlutfall inni í
    bekkjunum hvað hámark varðar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>